|
sunnudagur, janúar 15, 2006
Skellti mér á tónleika á stúdentakjallaranum í gær með Guðríði. Apparat var að spila, og voru það frekar feitir tónleikar. Langt síðan að maður hefur farið á tónleika á stúdentakjallaranum. Minnir að ég hafi farið á Hjálma tónleika fyrir eiginlega ári síðan þarna. Það var að sjálfsögðu allt troðið þarna, og rauninni mest megnis útlendingar. Fannst það svolítið fyndið. Eftir tónleikana löbbuðum við svo niður í miðbæ til að kíkja á stemninguna. Það var frekar fátt þegar við komum á Bankastrætið. Ákváðum að kíkja aðeins á Prikið, og sjá hvort að einhverjir væru þar. Og viti menn, ég held að ég hafi sjaldan hitt jafnmarga á Prikinu á einu kvöldi. Þarna voru margir fyrrverandi bekkjarfélagar úr MS (þar á meðal Miss World 2005), margir úr Laugarnesinu, og svo margir fyrrverandi Þróttarar. Hitti líka helming stórsveitarinnar StationWagon þarna. Þeir voru tjahhh..... ..... mjög hressir að vanda. En það sem ég virkilega hata við miðbæinn (og kannski aðallega Prikið) er helvítis plássleysið. Þessi staður er eiginlega ekki ætlaður fyrir mikið af fólki. Maður hafði kannski útaf fyrir sig pláss, sem samsvaraði svona eins og einn gangstéttarhellu. Það er ekki neitt sérstaklega mikið, sérstaklega ef maður er kominn aðeins í það, og heldur kannski á bjór. Þannig að þegar plássið minnkaði niður í hálfa gangstéttarhellu var tími til kominn að fara út. Þá leiðin á Nonna og svo heim. Það sem var samt frekar feitt í gær, var að þegar við ætluðum að pikka upp leigubíl, þá keyrir Hlynur fram hjá okkur með Kristínu Ellu. Hann bara bauð okkur far og það sparaði smá peninga fyrir fátæka námsmenn. Þakka þér fyrir það Hlynur. Bara fyrir þetta skal ég mæta og spartsla með þér kjallarann! Ætli það sé svo ekki hljómsveitaræfing í kvöld, þar sem ég vona að diskurinn okkar sé að verða tilbúinn. Þetta er farið að ganga svolítið hægt, og maður er orðinn ekki meira en lítið spenntur fyrir útkomunni....
[
posted
@
16:22
] [
]
þriðjudagur, janúar 10, 2006
Sit núna fyrir framan tölvuna og bíð eftir síðustu einkunninni úr jólaprófunum. Veit að hún kemur einhverntíman á eftir, en veit bara ekki nákvæmlega hvenær. Vona bara að þetta hafi gengið vel.
Fékk gesti til mín í gær. Baldur, Hlynur, Óli, Olla og Tobba kíktu til mín og Guðríðar í gær í spil. Sjálfsögðu strákar á móti stelpum, þar sem við unnum auðvitað. Vorum reyndar sakaðir um að kunna allar spurningarnar í Trivial utanað, en því miður fyrir þær reyndust við bara vera svona gáfaðir. Gaman samt að hitta Ollu núna, svona áður en hún fer út aftur. Og gaman líka að heyra að hún sé aftur orðin Þróttari. Það kannski að maður fari að láta sjá sig á leikjum aftur? Nei! nú get ég þetta ekki lengur. Ég get ekki beðið svona.... verð að fara út..........
[
posted
@
16:57
] [
]
laugardagur, janúar 07, 2006
Það er bara komið nýtt ár. Já maður er alltaf að verða eldri og eldri. Fékk fólk í heimsókn í gær, þar sem var spilað, drukkinn bjór og smakkað á heimabrugginu. Við vorum að langt fram á nótt, og föttuðum í raun ekki hvað tímanum leið fyrr en klukkan var orðin hálf 4. Það samt hægt að segja það að ég og Addi hafi átt kvöldið því við byrjuðum á því að rústa Trivial Pursuit og svo gjörsamlega rúlla upp Pictionary. Annað eins hefur ekki sést norðan Alpafjallanna.
Er svo að fara að skella mér á tónleikana í höllinni á eftir. Held að þeir verði frekar feitir. Hlakka til að sjá RASS og Mugison, já og Björk. Held líka að Damian Rice verði ágætur. Man nú ekki hverjir fleiri koma fram, en þetta verður allavegana veisla. Líst líka vel á að það er uppselt.
[
posted
@
17:37
] [
]
|