|
föstudagur, febrúar 13, 2004
Var á Batman.is rétt í þessu og rakst á eina snilld. allavegann flott lag sem undirspil! :)
[
posted
@
18:15
] [
]
Í dag er föstudagurinn 13. febrúar. Það finnst mér eiginlega svolítið magnað. Tveir vinir mínir eru að halda upp á tvítugsafmælið sitt í kvöld og verður það frekar gott djamm. Ég ætla reyndar að byrja kvöldið á að skella mér á morfís keppni upp í MH og sjá MH-inga rústa liði garðbæinga. Ég held að þetta verði gúddsjit ræðukeppni. Svo ætla ég að skella mér á eðalpöbbinn Café Strætó í Mjóddinni. Þar er Haukur að halda upp á tvítugsafmælið sitt. Það verður feit stemming þar. Ég mun verða þar eitthvað frameftir kvöldi en rölta svo yfir á smiðjuveginn og skell mér í tvítugsafmæli hjá Hrafnkeli, kærasta Kristínar. Þar verður fullt af fólki sem kann að verða skemmtilega ölvað. ég held einfaldlega að þetta kvöld verpi eitt það besta á árinu!
Svo styttist alltaf í það að ég hætti sem ármaður. Þegar sá dagur rennur upp, fagna ég því að vera laus við allt áreitið sem af þessu stafar. Stöðugar símhringingar um allt og ekki neitt og fólk sem ég veit ekki alveg hvað ætlast til af manni. Nú er eins og ég segi bara árshátíðarvikan eftir. Thank God!
[
posted
@
18:00
] [
]
mánudagur, febrúar 09, 2004
Jæja, er loksins kominn neðan úr skóla eftir að hafa þurft að vera þar í allan dag. Ahhh.... þetta er búinn að vera annasamur dagur. Vaar m.a. í útvarpsviðtali á Radio Reykjavík og í sjónvarpsviðtali á Popptíví vegna góðgerðatónleikanna sem strákarnir í listafélaginu eru að skipuleggja. Þeir eru haldnir í íþróttahúsi MS og fram koma Búdrýgindi, Jan Mayen, Dr. Gunni og Naglbítarnir. Kostar bara skitinn 500 kall inn. Ekki slæmt til að fá góða rokktónlist beint í æð.
Já og svo fór ég með u.þ.b. tveggja tonna hljókerfi niður í MH í dag. Þetta var gamla kerfið þeirra, sem þeir hafa ekki nennt að sækja til okkar. Djöfull var það þungt!!! og djöfull var það lélegt OG DJÖFULL ER ÉG FEGINN AÐ LOSNA VIÐ ÞAÐ!!!!! Það gekk víst undir nafninu ísjakinn niðri í ms. Ástæðan var sú að það var alltaf fyrir í sviðsmyndum á atburðum svo það var alltaf stungið upp á hvort það gæti ekki bara verið ísjaki.
Addi félagi minn er að sækjast eftir að verða arftaki minn í félagslífinu á næsta ári. Hann ætlar nefnilega að bjóða sig fram til ármanns. Djöful er ég ánægður með hann! Hann verður góður ármaður, sérstaklega ef að Baldur verður ritari og Emil gjaldkeri. Ekki slæm stjórn, það verður allavega fjörugt félagslíf með þá í fararbroddi Ég óska þeim alls hins besta í kosningabaráttunni því ég er því miður eftirlitsmaður kosninganna og má ekki skipta mér af. Allavega ekki mikið! ;)
Nú hef ég það fyrir áreiðanlegum heimildum að það sé verið að stofna súper rokkgrúppu hér á íslandi. Þetta eru víst allir nemendur í Menntskólanum við Sund og hafa áður tryllt lýðinn á hæfileikakeppni sms. Grúppan hefur ekki enn fengið neitt nafn en vinnuheitið á herlegheitunum er ,,Hefnd subbustelpunnar". Ég held að fyrsta plata þessarra drengja verði metsöluplata. Það bíða allavega spenntir eftir fyrsta smellinum sem kemur út von bráðar!
[
posted
@
20:00
] [
]
laugardagur, febrúar 07, 2004
Jæja ég sit núna uppi í sófa og horfi á Everton-ManU. Leikurinn er að klárast og staðan er 4-3 fyrir ManU. Í þessum töluðu orðum var Rooney að klúðra dauðafæri. Ef hann hefði nú bara skorað! Það hefði alveg bjargað deginum. En, jæja, það var verið að flauta leikinn af! Maður fær ekki allt sem maður vill. Jæja, ætla að fara að fá mér að borða. En samt.... Go Arsenal!!!
[
posted
@
16:55
] [
]
|