|
föstudagur, desember 02, 2005
Já, svona er það nú þegar maður á að vera að lesa undir próf. Maður bara getur einhvern vegin ekki haldið sig við efnið. Venjulegast er það tölvan sem kallar...., maður þarf að tékka á downloadinu þ.e.a.s. að eitthvað nýtt sé komið úr ónefndri seríu sem er ekki byrjað að sýna hér ennþá. Eða þá bara til að skoða önnur blogg. Já, ég skoða önnur blogg, en nenni ekki einu sinn að skrifa inn á mitt, hvað þá skoða það. Nei, þetta gengur ekki.... þarf að sé hvort að eitthvað breytist núna í prófunum. Ætla allavegana að skrifa eitthvað núna.
Keypti mér miða á tónleika sem eru í höllinni 7.jan. Flott line-up (mínus nokkra). Verður fínt að geta skellt sér á tónleika þá þegar lítið er orðið að gera.
Annars er það að frétta úr tónlistarheiminum að hin margfræga hljómsveit El corro de la Estation mun fljótlega heilla landsmenn með tónverkum sínum. Stund og staður verður auglýst síðar vegna anna meðlima í augnablikinu. Svo vonandi klárast upptökurnar fyrir jól, það allavegana undir tossanum komið.......
[
posted
@
20:53
] [
]
|