JP

 
   föstudagur, apríl 30, 2004  

Jæja, hér koma myndirnar frá dimmteringunni, loksins. Djöfull tekur það samt langan tíma að lóda þessu öllu saman upp. Það líka hægt að sjá myndirnar með því að klikka á linkinn hér til hliðar. Þarna eru líka myndir frá kvölmatnum á Básum.

   [ posted  @ 18:13 ] [ ]


 

Já, eins og Gunni hefur bent mér á, þá hef ég verið frekar slappur í skrifunum undanfarið. Það vegna þessa helv... stúdentsprófa. Búinn með líffræði og get ekki beðið eftir að klára rest. Er svo örugglega að fara að bóka flugfar á skelduna í kvöld, því ég heyrði að Muse og Graham Coxon (ex blurmeðlimur) hafi bæst í hópinn. Kíkti líka niður í kvennó í morgun og fylgdist með dimmiteringunni þar. Sá einmitt einhverja í turtlesbúning, eins og besti bekkur MS, 4.S, klæddist á dimmissjón þar. ekki samt nóg flottur hjá Kvenskælingum. skýringin er auðvitað sú að það rokkar enginn skóli meira en MS. Þessi dimmitering er auðvitað allt öðruvísi heldur en við þekkjum hana hjá okkur. Þarna fara bekkirnir upp á svið, í búningunum, og gefa kennurum gjafir. Þetta er svona combo áf dimmiteringu og fardegi hjá okkur (þó ég hafi heyrt að þetta hafi einhvern tíman verið svona í MS). Svo var einhver óvissuferð farin þar hrundu í það saman. Ég verð samt að koma á framfæri að þarna sá ég einn fyndnasta búning sem ég hef séð lengi. Það voru einhverjir klæddir upp eins og Lionsklúbburinn Kiddi, sem einmitt skemmti landanum svo eftirminnilega í Stellu í orlofi. Og auðvitað voru berjatínurnar og klósettpappírinn á sínum stað.

Biðst afsökunar á að myndirnar eru ekki enn komnar. Það er búið að vera eitthvað fokk með picturetrail svo þetta hefur ekki enn tekist hjá mér. Koma þó von bráðar. Jæja, ætla að fara að halda áfram að læra......

   [ posted  @ 16:13 ] [ ]



   mánudagur, apríl 26, 2004  

er núna í þessum skrifuðu orðum að lóda upp myndum frá dimmiteringuni til að setja hér inn. Tekur samt alveg helvíti langan tíma. En svo hafi eithvað að gera á meðan....
Fór á Violet Femmes tónleikana á sumardaginn fyrsta. Þetta var náttúrulega hreinasta snilld. Þeir tóka öll sín bestu lög (veit reyndar ekki neitt sem er leiðinlegt) og djömmuðu líka svolítið út frá þeim. Þetta var sem sagt algjör veisla fyrir tónlistarnörda! Samt heyrði maður óánægjuraddir hjá einhverjum áhorfendum að þeim hafi fundist hálfleiðinlegir og ekki eins fjörugir og þeir höfðu búist við. Ég skil ekki alveg svona fólk. Það er eins og það kunni ekki meta það sem gert er fyrir það, og að rauninni eigi aðrir skemmta þeim í staðin fyrir þau sjálf. Svon eru því miður allt of margir Íslendingar, og mættu að mínu mati Wake up and smell the coffee.... Sem betur fer er samt líka til fólk sem kann að meta allt svona og fær það props fyrir það.

   [ posted  @ 00:59 ] [ ]


 

Já, og í vikunni munu koma inn myndir frá dimmeteringu okkar MS-inga, ásamt myndum frá útskriftarkvöldmatnum. Einnig koma inn myndir frá dimmiteringu Mh-inga, þannig að það verður nóg af myndum til að skoða. Jafnvel að ég smelli líka inn myndum af Violet Femmes tónleikunum, sem voru gargasta snilld!

   [ posted  @ 00:35 ] [ ]


 

Mínir menn eru orðnir Englandsmeistarar. Alls ekki slæmt hjá þeim! Nú óska ég Man. City góðs gengis í fallbaráttunni.

   [ posted  @ 00:30 ] [ ]



   þriðjudagur, apríl 20, 2004  

Fardagur okkar Msinga var áðan. Þetta var nokkuð skemmtileg athöfn, þar sem allir útskriftarbekkir kvöddu kennara sína. Ég var talsmaður bekkjarins míns, og fannst ég bara komast helvíti vel frá þessu öllu saman. Svo er dimmitering á morgun, sem og kvöldmatur með kennurum og stjórnendum á Básum annað kvöld. Ég vona innilega að stjórn skólans sjái nú að sér og bjóði tölvuumsjónarmanni skólans, honum Gunnari Erni með að þessu sinni. Það lítur nefnilega út fyrir það að þessi blessaða skólastjórn skilji hann alltaf útundan. Jæja, of to work now.....

   [ posted  @ 15:09 ] [ ]



   sunnudagur, apríl 18, 2004  

Þá er helgin næstum búin og maður kannski búinn að vera eins duglegur og maður ætlaði sér. Vaknaði ekki fyrr en á hádegi í dag og ákvað að skella mér í sund með Guðríði. Það var ágætt. Losaði svolítið um stressið. Hitti líka Sprella Morgan þar í góðu fjöri. umræðurnar voru aðallega um hversu lítill lærdómurinn hafði verið og hversu mikið áfengi ætti að innbyrða á miðvikudaginn. Svo var það bara lestur í líffræði í allan dag. Og rétt í þessu var stöð 2 að detta út! Djöfulsins fokk! Það virkar aldrei neitt á þessu skíta landi!

   [ posted  @ 22:03 ] [ ]



   föstudagur, apríl 16, 2004  

Já ég veit að þessi comment linkar eru frekar ljótir. Er bara að læra á þetta......

   [ posted  @ 21:34 ] [ ]


 

Svo arsenal vann bara 5-0. Ekki slæmt! Og Henry bara með fernu! Það var algjör meistarabragur yfir leiknum. Þetta leika fá lið eftir. Til hamingju Wenger og félagar, það styttist alltaf í bikarinn.

Þetta er svo skrítið. Nú er maður loksins að útskrifast úr menntaskóla og búinn að vera lærandi seinustu vikur fyrir stúdentinn, en samt hefur ekki eins mikla löngun til að útskrifast eins og maður hafði fyrr í vetur. Það var kannski útaf þessu ármannsembætti sem maður gengdi. Ef ég á að segja alveg eins og er þá fékk ég alveg nóg strax eftir busaballið. Það er gott að það eru komnir nýir að, og ég get farið að einbeita mér að því sem skiptir meira máli... .... framtíðinni. Maður er samt farinn að finna fyrir svolitlum hroka hjá þessum nýju. Ætli maður verði ekki þola það, því ég veit að hann hverfur þegar fólk gegnir ekki lengur sínum embættum.
Dimmiteringin verður næsta miðvikudag, og þá er von á smá ölvun og tjah.... frekar miklum fagnaðarlátum. Svo verður borðað um kvöldið á Básum með öllum árgangnum og kennurum. Þetta verður gúddsjit dæmi þar sem félagi alkóhól verður ekki langt undan.

   [ posted  @ 21:16 ] [ ]


 

Nú er bara hálfleikur og Arsenal eiginlega strax búið að vinna Leeds. Staðan 3-0. Ég held að þetta sé vonlaust fyrir Leeds. Henry á skilið hrós fyrir 2 mörk. Ætli hann nái þrennunni?

Er svo jafnvel að fara í afmæli á eftir á Dillon. Það er skjáta sem heitir Bryndís sem stendur fyrir þessu boði. Ég á því von á að sjá mökkaða MH-inga í sínu besta á eftir. Ætli maður reyni ekki að setja einhverjar myndir inn frá því. Það væri allaveganna ekki leiðinlegt.

Jæja, núna er seinni hálfleikurinn að byrja. Gotta go man.....

   [ posted  @ 20:01 ] [ ]


 

Ahhh.... Grilldagur í dag! Nautafille og margt meira gúddsjitt. Ætla að fara að drulla mér að borða. Svo á eftir er náttúrulega leikurinn Arsenal-Leeds á eftir. Hef það á tilfinningunni að mínir menn taki þetta og sendi Leeds niður. Go Arsenal!!!!

   [ posted  @ 18:16 ] [ ]



   miðvikudagur, apríl 14, 2004  

Er svona hægt og rólega að kynna mér alla möguleikana á þessari blogsíðu. Var að koma mér upp myndasíðu hér til hliðar, svona fyrir gesti til að sjá! Vona bara að fólk hafi gaman af þessu. Er svo örugglega á leiðinni niður í bæ á eftir að kíkja á MH-Kvennó bjórkvöld á Kapital. Hef heyrt að tilboðin á barnum séu gúddsjit og ætla því maske að fá mér einn kaldan, fyrst að maður þarf að vera á bíl. Annars yrðu þeir örugglega töluvert fleiri!

   [ posted  @ 21:59 ] [ ]


 

Já, maður lofar alltaf og lofar að vera duglegri við að skrifa inn á þetta blessaða blogg, en hef svo eiginlega bara ekki nennt því. En nú varð bara sú breyting á málum að ég fékk digitalus camerus í afmælisgjöf og búin að nýta mér hana vel. Ég tók nokkrar myndi í afmælinu hans Lemma meðan ég var að læra á hana og svo nokkrar myndir í grillpartýinu hjá Leó. Þessar myndir er hægt að sjá hér. Jæja núna tekur við lestur fyrir stúdentspróf í allan dag!
Já og meðan ég man! Leó, til hamingju með langþráða bílprófið!

   [ posted  @ 13:33 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]