|
fimmtudagur, mars 23, 2006
Jeeeeesssssss!!!!!! Var að fá póst frá Lyfjastofnun um að koma í viðtal..... Loksins að einhver svari manni! Það væri feitt að fá að vinna þar, kynnast öllum þessum reglugerðum, nýskráningu á lyfjum o.s.frv. Góður vinnutími held ég líka.... Ég þarf samt að passa mig að verða ekki of vongóður, því það er örugglega fleira fólk en ég að fara í viðtal. Þau taka nefnilega bara 1 nema sumri. Veit að Guðríður fékk líka póst frá þeim, en hey... hún er komin með vinnu hjá Actavis. Það ýtir kannski undir að ég fái þessa vinnu?
Er núna að standa í því að flytja lögheimilið mitt niður í Haga við Hofsvallagötu (þið vitið, rétt hjá Melabúðinni). Þarna ætla ég að búa næsta rúma mánuðinn eða svo. Efast um að það verði mikið um svefn á þessum tíma. Er byrjaður að mæta með drasl að heiman, svona í hollum, svo það verði allt ready þegar geðveikin byrjar. Klára nefnilega í verklegu í næstu viku, svo að þá á að byrja á þessu. Einhvernvegin þarf ég samt að eiga peninga á meðan ég verð þarna, svo ég auglýsi hér með kjallaraíbúð í laugarnesinu til leigu í þennan mánuð. Og fyrst að þetta er svona eftirsótt hverfi þá skulum hafa þetta eingöngu verðtilboð. Getum kannski sagt að opnunartilboðið sé, tjahh 100 kjell.....
[
posted
@
22:30
] [
]
miðvikudagur, mars 22, 2006
Var núna að komast að því að það var apple sem er búið að vera að fokka upp tölvunni minni síðasta mánuðinn. Þetta helvítis iTunes. Í gær endaði það á að "fela" geisladrifið á tölvunni. Ekki sérlega skemmtilegt. Var á netinu heillengi að leita að lausn þangað til að ég lenti inn á einhverju spjallborði hjá gaurum sem greinilega hata Apple núna jafnmikið og ég. Þar fann ég út að ég er ekki sá eini sem hefur lent í þessu. Sem betur fer voru samt leiðbeiningar þarna til að redda þessu. Það versta er samt að ég á iPod sem er svosem frábær á sinn hátt (reyndar fyrir utan batterísmál). Eina forritið sem virkar (þ.e.a.s. almennilega) með iPodnum er iTunes, og því neyðist ég til að nota þetta rusl. Svona ráð fyrir þá sem nota iTunes.... EKKI uninstalla því..... því þá fer allt í fokk eftir smá tíma.
Annars er bara allt styttast í að maður fari bara að vinna. Skólaárið er í raun að enda án þess að maður sé í raun búinn að átta sig á því. Próftaflan komin, verklegt að klárast, og uppgötvanir um hvað maður á mikið eftir að gera mikið koma fram. Þetta reddast samt alltaf einhverntíman.
Er ekki enn kominn með vinnu (er samt enn með málaradjobbið) og býst ekki við svosem að fá neina. Það er svosem ekki slæmt að vinna sem málari, bara að manni langar til að prófa eitthvað nýtt. Ef einhver veit um eitthvað, endilega benda á það. Þessir Litháar sem Mottan benti mér á voru nefnilega einfaldlega að borga nógu mikið.
Og núna er það spurning hvort maður skelli sér aftur á Hróarskeldu í ár. Spurning hvort einhverjir aðrir séu til í að kíkja? Gott lineup.....
[
posted
@
21:16
] [
]
fimmtudagur, mars 09, 2006
Jæja.... þá er diskurinn kominn í hús..... Loksins,loksins! Þetta tókst ágætlega upp, miðað við demoupptökur í æfingarhúsnæði. Er að spá í að smella inn hér svosem eins og einu lagi, þá getur fólk heyrt og kommentað á afraksturinn. Sé hvenær ég kemst í það.
Er núna í veseni með að finna vinnu fyrir sumarið. Er orðinn hálfþreyttur á sama gamla djobbinu í málningunni, sem ég geng reyndar að vísu ef ég vill. Langar bara að gera eitthvað annað, sem krefst "venjulegri" vinnutíma, og það væri ekki leiðinlegt ef að það tengdist náminu eitthvað. Vona bara að einhver bænheyri mig með þetta....
[
posted
@
23:31
] [
]
|