JP

 
   fimmtudagur, febrúar 24, 2005  

Hafið þið einhverntíman lent í því að fá svona gulan miða sendan heim frá bankanum? Allavegana fékk e´g einn svoleiðis í gær. Og þegar ég opnaði hann, þá kom í ljós, að ég hafði farið yfir um á reikningnum. Skemmtilegt það já. En það var svosem ekki það versta, því bankinn hefur greinilega þann sið að rukka rúmlega 7oo kall fyrir hverja færslu sem er farið umfram. Jájá, og ekki batnar það. Manni er sent þetta bréf í pósti, svo ég hafði verið í mínus á reikningnum í amk 2 daga. Frábært! Þetta vesen kostaði mig nokkra þúsundkalla. Helvítis vesen segi ég. Efhverju getur bankinn ekki lokað kortinu á fyrsta degi þegar þetta gerist, og sent manni bara tilkynningu um það. Nei, þeir vilja heldur fara þá leið að arðræna mann alveg, og ég sem er fátækur eins og allir námsmenn. Það er greinlega svona sem bankarnir græða allan þennan pening!

   [ posted  @ 11:23 ] [ ]



   þriðjudagur, febrúar 22, 2005  

Hvað finnst fólki um þetta reykingabann sem er í umræðunni þessa dagana? Ég veit nefnilega ekki alveg hvað mér finnst, því tjahh..... ég er ekki reykingamaður. Samt veit ég ekki alveg hvort ég sé með þessu eða á móti. Vissulega finnst mér stundum að það ætti að banna þetta allt saman, en það er aðallega þegar ég er að koma heim úr bænum, angandi eins og öskubakki af því að allir aðrir í kringum mig voru að reykja. En það er ekki alltaf sem mér finnst þetta. Stundum angrar þetta mig samt ekki neitt. Þess vegna væri gaman að sjá hvað öðrum finnst um þetta.
Það hlýtur samt að vera ömurlegt fyrir reykingarfólk að þurfa alltaf að fara út og reykja, þ.e.a.s. ef þetta bann verður samþykkt. Ég spyr mig bara: Erum við ekki að brjóta á mannréttindum fólks þótt við bönnum eða bönnum ekki? Það er ekki eins og reykingar séu bannaðar með landslögum. Fólk má kaupa sígarettur 18 ára, og fara inn á skemmtistaði 20 ára. Eins og ég segi, þá veit ég bara ekki hvað ég á að halda....

   [ posted  @ 22:00 ] [ ]



   föstudagur, febrúar 18, 2005  

Ég fór og kíkti á söngvarakeppni MS með Óla og Gunna á miðvikudaginn. Þetta var hin fínasta keppni, og fannst mér gaman að sjá hvað hljómsveitin var drullu góð. Í þessari keppni var töluvert meira um hæfileikafólk, heldur en hefur verið seinustu ár. Siguratriðið var frumsamið og mjög fínt í alla staði, og spá ég því ofarlega á söngvakeppni FF sem verður haldin að ég held í mars eða apríl. En mikið var ég feginn að ég var ekki að standa í neinum undirbúningi þarna. Gott að geta bara mætt, horft á, slappað af, og geta svo bara farið heim þegar þetta var búið í staðinn fyrir að þurfa að vera eftir og ganga frá.

Ég er svo að fara í vinnupartý í kvöld. Sumarvinnan mín, Litagleði ehf, er að fara að hittast á players í kópavogi og spila pool. Það verður fínt, því við höfum 3 borð útaf fyrir okkur, og erum ekki nema kannski 10 (ef allir mæta).

Svo eru það lybbaleikarnir á morgun. Það er íþróttahátíð lyfjafræðinema. Keppnisgreinar eru m.a. kappdrykkja og brennó. Ég er að sjálfsögðu í brennóliðinu, ásamt góðu fólki. Djöfull ætlum við að rústa þessu og sýna fram á yfirburði 1. árs.

Ætli ég verði nú samt ekki að fara að læra núna, fyrst að helgin er svona uppbókuð. Þetta er alveg agalegt að læra á föstu degi.....

   [ posted  @ 14:02 ] [ ]



   fimmtudagur, febrúar 10, 2005  

Heyrði í Gumma áðan, og hann er ákveðinn að fara á Hróarskeldu. Líst vel á þá ákvörðun hjá honum. Þá lítur allt út fyrir að ég og hann skellum okkur saman, og hittum Val og félaga. Ég tek það fram að öllum er velkomið að kíkja með okkur. Þetta er sko meiri upplifun en nokkur sólarlandaferð!

Svo finnst mér háskólalífið hálf fyndið þessa dagana. Það er kosningabarátta í fullum gangi, og meðlimir flokkanna alveg að gera mann vitlausan. Þeir ganga á mann á göngunum, hringja í mann, og senda manni sms, bara til þess að minna mann á að kjósa, og kjósa rétt. Þetta finnst mér mjög þreytandi. Ég var reyndar búinn að mynda mér skoðun fyrir löngu, en sumir hafa hreinlega bara ekki áhuga á þessari sandkassa pólitík. Mér finnst að þeir megi hafa þá skoðun í friði, án þess að einhver sé alltaf að nauða í þeim að nýta sér nú kosningaréttinn sinn. Kosningaþátttaka seinustu ára hefur sýnt sig að það eru sífellt færri sem hafa áhuga á þessu, eða þá finnst þeir sem eru í framboði ekki þess verðir að fá atkvæði. Þetta er umhugsunarvert, og sýnir jafnvel fram á það að þetta kosningakerfi er kannski svolítið gallað. Kannski þarf bara að breyta þessu öllu saman, og koma á t.d. einstklingsframboði. Það er svosem heldur ekkert fullkomið, en eitthvað þarf að gera. Spurningin er bara, hvað?

   [ posted  @ 19:23 ] [ ]



   sunnudagur, febrúar 06, 2005  

Nú er uppi sá orðrómur að ákveðinn hópur úr laugarnesinu sé að fara í sveitaferð að drangshlíð. Þykir mér það kominn tími til og vonast eftir að sem flestir mæti. Þetta verður held ég besta ferðin sem farin hefur verið hingað til. Fyrir þessa ákvörðun fær Gummi mikla þökk!

p.s. Valur, mér líst vel á að þið séuð að fara á Roskilde. Fyrst að þið eruð að fara, þá er eiginlega bókaða að ég fari og hangi með ykkur..... :)

   [ posted  @ 18:28 ] [ ]



   föstudagur, febrúar 04, 2005  

Hef mikið verið að velta fyrir mér að skella mér aftur á Hróarskelduna næsta sumar. Mér er farið að lítast vel á böndin sem þegar eru skráð, og einnig allar sögusagnirnar um hvaða bönd eru gætu verið að fara að koma þangað. Þetta var nefnilega með skemmtilegri lífreynslunum mínum, þrátt fyrir veðrið. Maður þarf nefnilega að vera fljótur að bóka flugfar ef maður ætlar að fara ódýrt. Ég var í seinni kantinum í fyrra, og var eiginlega á dýrustu fargjöldunum. Stærsta spurningin með þetta er samt..... ,,Hverjir er til í að kíkja með mér?"

Svo var ég að fá gleðifréttir í skólanum í dag. Gæinn sem sér um efnagreiningarnámskeiðið er á leiðinni í aðgerða á baki, og þarf því að hætta að kenna okkur. Vúúúúhúúúú! Hann er algjört dick, og ég vorkenni honum ekki neitt. Hann ætlar að finna einhvern í staðinn, sem mun kenna út áfangann. Alltaf gott að fá góðar fréttir á föstudögum!

En svo er það nú það. Ekki var ég allskostar sáttur við afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna. Mér fannst t.d. ónefnd hljómsveit ekki eiga skilið að fá bestu rokkplötuna, ekki sáttur við valið á söngvara ársins, og ekki sáttur við..... uhhmmm... já, margt fleira. En þetta er ekkert sem ég get breytt þannig að ég verð víst bara að sætta mig við þetta.

   [ posted  @ 16:00 ] [ ]



   miðvikudagur, febrúar 02, 2005  

Þá eru það bara íslensku tónlistaverðlaunin á eftir. Spennandi að sjá hvernig fer. Ég tók þátt í könnun á vísi.is áðan og giskaði á hvað ég héldi um úrslitin. Svo er það bara að vona að maður hafi reynst sannspár, því ferð til kaupmannahafnar á U2 tónleika er í húfi. Svo vil ég líka óska honum Kjartani frænda og hljómsveit hans, Jagúar, góðs gengis í kvöld. May the best artist win!

Ég spáði svona:

Poppplata ársins: Mugimama-is this monkeymusic?
Rokkplata ársins:
Guerilla Disco
Dægurtónlist-plata ársins: Vetrarljóð- Ragnheiður Gröndal
Söngvari ársins: Jens Ólafsson
Söngkona ársins: Björk Guðmundsdóttir
Flytjandi ársins: Jagúar
Lag ársins: Stun Gun
Bjartasta vonin:
Jan Mayen
Umslag ársins: Electric Fungus-Brainpolice
Myndband ársins: Oceania- Björk Guðmundsdóttir

Svo er bara að sjá hvað af þessu gengur eftir...

   [ posted  @ 18:46 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]