|
þriðjudagur, október 21, 2003
Jæja, maður hefur nú verið latur að skrifa upp á síðkastið en drullast þó til þess núna. Var nefnilega í vetrarfrí í skólanum. Það var algjör himnasæla. Bara að þetta hefði verið vika, en ekki 4 dagar. Það er allavega kominn frekar mikill skólaleiði í mann. Eins gott að maður útskrifast í vor.
Já ég var að átta mig á því að ég hef ekki skrifað síðan áður en ég fór út til Danmerkur. Það er kannski ágætt að maður tali aðeins um þá ferð. -Fór út á föstudegi, frekar slakur og hlakkaði til að hitta Hildi sis. Lendi um 6 leytið og ferjaður strax niður á Hovmålvej. Þar tekur við stutt stopp því Hildur var mjög spennt fyrir að sýna mér nýju íbúðina. Við förum því þangað til að meta hvað þyrfti að gera yfir helgina. Ég labba inn í íbúðina og... ...djöfullinn sjálfur... það var gjörsamlega allt sem eitthvað þurfti að laga. Þessi skoðanaferð endaði sem 6 tíma vinnuferð. Daginn eftir tóku svo við 13 tímar samfleytt og eitthvað álíka á sunnudaginn. Þetta hafðist þó um hádegið á mánudeginum og var ég þá gjörsamlega búinn. Íbúðin er allt önnur en hún var þá. Hún er stórglæsileg! Til hamingju enn og aftur Hildur og Thor Magnus með nýju íbúðina. Djöfull eigið þið eftir að þurfa að hýsa mig oft núna! :)
[
posted
@
18:03
] [
]
miðvikudagur, október 08, 2003
Jæja, Þá vil ég bara nota tækifærið og óska henni Hildi sis til hamingju með afmælið. Í dag varð hún 25 ára gömul. Að hugsa sér að manneskjan sé að verða þrítug, hún er bara orðin kelling. Ég bíð þess með hryllingi að verða þrítugur og vona hreinlega að tíminn standi í stað þegar ég verð tvítugur. Það er alla vega eins gott að þessi tími sem ég á eftir í að verða of gamall sé sæmilega lengi að líða!
Svo styttist nú líka í að ég skelli mér í vélina og fljúgi á mörg hundruð kílómetra hraða frá þessum helv... útnára. Annars skilst mér að það sé álíka skíta veður í köben, en vona bara að það sé einhver lygi. Það er eins gott að það verði allavega
gott veður á föstudagskvöldið, svo hægt sé að taka pöbbarölt og fá sér nokkra stóra.
Og nú vík ég mér svo að slúðrinu...
Heyrst hefur að Finnur Atli hafi höstlað einhveja stelpu í tenglaferð SMS um síðustu helgi. Hún heitir víst Edda og hér má sjá mynd af þeim skötuhjúum tilvonandi í action. Ég vona bara að þetta gangi upp hjá Finni og frú.
[
posted
@
23:17
] [
]
þriðjudagur, október 07, 2003
jæja, ég get nú ekki sagt að ég hafi mikið að gera akkúrat núna. Tel bara niður dagana þangað til að ég fer til Danaveldis. Það er nefnilega verið að "kaupa" mig út til að mála svona eins og eina íbúð. Ekki slæmt. Brottför er á föstudaginn í hádeginu og heimkoma á mánudaginn. Það vill svo heppilega til að þarna á föstudagskvöldið er kulturnat í köben, svo allir baunarnir flykkjast niður í bæ og hella sig fulla, til sýna sína sönnu menningu. Að sjálfsgðu mun ég ekki láta mig vanta og mun e.t.v. skella mér staði eins og moose og Copenhagens jazzhouse. Veit samt ekki alveg með það, en eitt veit ég og það er að bjórinn mun ekkivanta þa kvöldið. Svo tekur við vinnan um morguninn. Þetta er hvort sem er svo mikil þynnkuvinna, þetta málaradjobb, að ég er hættur að kippa mér upp við þynkunni. Málið er nefnilega að Hildur sis var að kaupa sér íbúð þarna úti og þarf að taka hana algjörlega í gegn. Þess vegna er ég, málarinn í fjölskyldunni, fenginn til að hjálpa. Maður segir ekki nei við frírri ferð til köben og svo fríu uppihaldi. Það gera bara asnar.
[
posted
@
18:03
] [
]
Í dag, þriðjudaginn 7. október, ef ég formlega byrjað á þessari bloggsíðu. Maður muna reyna að eftir bestu getu (eða eftir því hvort maður nennir) að uppfæra bloggið reglulega.
Nú er ég einmitt í vinnunni og hef ekki neitt að gera, rétt eins og öll þau skipti sem ég er hérna. Vinnan mín felst einmitt í því að gera sem minnst. Það er ekki slæmt að fá fyrir 4 tíma af leiðindum, einungis á þriðjudagskvöldum um 20 þús kall beint í vasann. Maður hatar það ekki.
[
posted
@
16:34
] [
]
|