JP

 
   föstudagur, desember 17, 2004  

Nú er maður búinn í 2 prófum af 3, og er svona farinn að sjá fyrir endann á þessu öllu saman. Ég er samt alveg kominn með upp í kok af þessu öllu samann og get ekki beðið eftir að vera búinn. Veit samt ekki með daginn sem einkunnirnar verða birtar. Þetta stendur tæpt haldég í öllu saman. Þýðir samt ekkert að hafa áhyggjur af því, þetta fer bara eins og þetta fer.

Svo er gaman að segja frá því að ég, Emil, Addi, Baldur og fleiri voru sendir inn á þau heimili sem eru áskrifendur moggans, í gær. Það var svona aukabréf frá Barnaheill, samtök sem MS styrkti um 1,1 milljón. Okkur hafði reyndar verið sagt að þetta ætti að koma í mogganum um mánaðarmótin nóv/des svo að ég var farinn að halda að þetta kæmi aldrei. Alltaf gaman að geta lagt einhverjum lið.....

Ég vil að lokum óska þeim sem eru ennþá í prófum góðs gengis.....

   [ posted  @ 17:01 ] [ ]



   þriðjudagur, desember 14, 2004  

Var að koma úr stærðfræðigreiningarprófinu mínu. Ég held að ég hafi alveg náð að massa þetta nóg, svona til að ná. Vona það allaveganna. Það voru samt blendnar tilfinningar um prófið, og ég held að þetta próf muni sjá til þess að eitthvað fækki af fólki á þessu ári. Það náttúrulega aldrei gott... En núna þarf maður að snúa sér að næsta efni, þ.e.a.s. eðlisfræðinni. Haf 2 daga til þess að massa hana frá grunni.... Við skulum sjá hvort að það gengur......

   [ posted  @ 13:03 ] [ ]



   laugardagur, desember 11, 2004  

Jæja, hættur að læra í dag. Alveg búinn að fá nóg af stærðfræði í bili..... Skrapp þess vegna aðeins í kringluna áðan, til að dreifa huganum, og líka til þess að leita að einhverjum jólagjöfum. Þetta er samt alltaf sama vesenið, á hverju ári. Ég veit aldrei hvað ég á að kaupa, og þar að auki hef ég ekki tíma fyrir þetta búðarráðskjaftæði, sem flestir íslendingar stunda óðir þessa dagana. Það var gjörsamlega allt að verða vitlaust áðan, allir að rekast á alla, allir að drífa sig svo mikið, allir voða pirraðir (og ótrúlegt en satt að ég var ekki í þeim hóp þarna) og ekki í neinu jólaskapi að mér virtist. Kannski er þetta bara jólaskapið hjá sumu fólki? Maður spyr sig bara....

Annars fannst mér mjög fyndið að rekast á einn mann áðan í kringlunni. Það var hann Smári litli. Hann var greinilega að vinna í skífunni, og var settur í það skemmtilega hlutverk að árita diska með Ragga Bjarna. Ég var bara að labba þarna í átt að rúllustiganum og heyri þá allt í einu kallað á mig.... Ég hélt hreinlega að ég hefði orðið eitthvað frægur bara á einni nóttu, og það væri eitthvað megaseleb að kalla á mig. Nei nei, ekkert svo gott. Þetta var bara litli glókollurinn að heilsa. Það var samt bara mjög skemmtilegt. Maður hefur varlað séð hann síðan maður útskrifaðist, og á það í raun um fleiri. Akkúrat núna vilsi ég vera ennþá í Menntaskóla, þar sem prófin eru hálfgert djók miðað við það sem ég er í núna, það væri ljúft. Að vera líka kominn í jólafrí og svona. Ég meina, ég er ekki einu sinni búinn að fara í fyrsta prófið mitt af þremur!!! Og þar að auki ekki búinn fyrr en 21. des! Algjör bömmer.... Vona bara að þetta gangi allt upp hjá mér....

   [ posted  @ 20:00 ] [ ]



   miðvikudagur, desember 08, 2004  

Jæja. þá er maður að byrja að læra enn einn daginn. Klukkan er 9, og allur helvítis dagurinn framundan fyrir stærðfræði. Ekki skemmtilegt get ég sagt ykkur. Fer í prófið 14.des, og tjahh.... þá er gleðidagur í mínu hjarta......... vonandi. Ef ég næ, þá er ekki meiri stærðfræði á þessari önn. Sem betur fer....

Annars er voða lítið að frétta af manni, ég læri bara og læri, og mun gera það fram að 21. des. Þess vegna verða kannski ekki regluleg skrif hérna inni á síðunni, en ég mun þó reyna. Er svo að fara að vinna seinasta vinnudaginn minn fyrir áramót á eftir.... Fínt að komast í frí þar.

Gaman að heyra, að Arnar muni ganga í Háskólasamfélagið eftir áramót. Skilst að hann ætli í líffræði. Þá á ég nú örugglega eftir að hitta mikið. En það vinnst ekkert á meðan ég er að drolla í tölvunni.......

   [ posted  @ 08:58 ] [ ]



   miðvikudagur, desember 01, 2004  

Hversu margir ætli fái nýju Birgittu Haukdal dúkkuna í jólagjöf í ár?

   [ posted  @ 22:00 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]