|
laugardagur, maí 29, 2004
Nú er maður loksins frjáls! Í gær útskrifaðist ég úr menntaskólanun við sund. Athöfnin var í lengri kantinum, og hefði rektor alveg getað sleppt því að tala um fjármál og rekstur skólans í ræðu sinni. Það lengdi athöfnina örugglega um hálftíma. Það var líka skuggalegur hiti þarna, aðallega vegna þess að húsið var troðfullt. Þetta var samt bara fínt! Það var allt mjög smekklegt og stóð Gummi leikfimi sig eins og hetja sem sviðsstjóri. Eftir athöfnina var skundað niður í háskóla í myndatöku. Það tók svolítinn tíma, vegna þess að erfitt var að komast út af bílastæðinu hjá kringlunni og voru því margir lengi að koma sér upp í háskóla. Myndin kom samt drulluvel út.
Ég hélt svo veislu heima fyrir um 30 manns. Það var frekar mikið af áfengi í boði sem og matur. Það var svo nóg eftir af mat en áfengið fór langt. Þetta var bara frekar fínt fest. Fékk líka margar fínar gjafir. Frá Guðríði og fjölskyldu fékk ég bókina Rock&Pop sem er eins konar uppflettirit (coffetablebook) með flest öllum frægum hljómsveitum sem hafa verið allt frá 6. áratugnum. Nóg lesning út árið. Frá pabba og mömmu fékk ég digital myndavél. Frá Bjössa uppeldisbræðri mínum fékk ég bók um gítara og gítarista og hvernig gítara þeir hafa notað í gegnum tíðina. Alls ekki slæmt, og þetta vissi hann kallinn. Fékk svo geðveikt úr frá Hildi og TM. Þetta er aðeins hluti af því sem ég fékk, því hitt er varla vert að telja upp (peningar og svoleiðis). Nú þarf maður svo að sækja um í háskólanum fyrir 5.júni. býst við að maður geri það núna um helgina. Jæja, ætla að fara að horfa á ungfrú Ísland. Þar er víst nóg lambakjöt til sýnis!
[
posted
@
22:31
] [
]
miðvikudagur, maí 26, 2004
Andskotinn hvað maður er að drukkna í vinnu! Verð samt örugglega ánægður um mánaðarmótin þegar peningarnir koma streymandi inn. Alls ekki leiðinlegt það! Er núna að mála blokk á sléttuveginum og einbýlishús í Hafnarfirði að innan. Svolítið langt á milli, en what the fuck... þetta er vinna og þetta gefur peninga. Fór í útskrift í gær hjá æskuvini mínum, Bjössa. Hann var að útskrifast úr Kvennó. Fín veisla og ágætur matur. Hefði samt mátt vera meira munch. Svo er ég náttúrulega að útskrifast á föstudaginn. Þá loksins verð ég sáttur, búinn að losna úr þessum helvítis skóla! Svo kemur Hildur systir heim frá Danmörku ásamt TM og ætla þau að vera yfir helgina, svona rétt til að mæta í útskrift hjá litlabróður. En jæja, ætla að skella mér í sturtu og fara að taka til fyrir veisluna... ...áfram Monaco í kvöld!
[
posted
@
17:27
] [
]
mánudagur, maí 17, 2004
Þá er maður bara búinn í prófum. Gæti ekki verið sáttari, eða jú kannski aðeins... fer nefnilega í munnlegt próf í þýsku á morgun. En miðað við skriflega þýskuprófið, þá ætti þetta að vera álíka auðvelt og að drekka vatn. Nú er maður bara sáttur við losna úr þessum helvítis skóla. Ég gæti aldrei eytt ári í viðbót þarna, bara gjörsamlega búinn að fá nóg. Svo stefnir allt í mikið djamm framundan. Unnur Birna heldur upp á afmælið sitt á föstudaginn, Guðríður útskrifast úr MH á laugardaginn og svo ég helgina þar á eftir. Þetta verður góður tími.
Já, og hvað var málið með okkur á Júróvisjón! Þessi hátíð ætti í raun að heita Suck up to your neighbour by giving him 12 points! Það virtist vera þannig að nágrannalönd gæfu hvor öðrum 12 stig af því bara... Er samt ekki að segja að við höfum kannski átt fleiri stig skilin. Ég meina, jújú... Jónsi var fínn og lagið fór að venjast eftir tíundu hlustun. Það var ekki eins og hann hefði fokkað einhverju upp. Svona lög bara bliva ekki í Suður Evrópu. Til að fá stig frá þeim þarf að hafa FM-hnakkatakt (svona einsog scooter) og hafa nóg af fáklæddum kvenmönnum. Þessi keppni snýst í rauninni um það. Upp kom sú hugmynd í partýinu þar sem ég var að senda nýja íslenska girlbandið Nylon í keppnina með frumsamið lag (það yrði nú eitthvað skrautlegt því ég efast um að þær geti reimað skónna sína sjálfar). Takturinn þyrfti bara að vera nógu harður og þær allar fáklæddar með sílikon. Þá er ég viss um að við lendum í topp 5. Annars væri líka bara ágætt að gefa algjöran skít í þetta, og senda Megas, já eða þá Mínus! Við myndum allveganna rokka feitt í það skiptið. Það þarf að afnema þessa ógeðstónlist úr þessari keppni, því keppnin virðist eingöngu vera fyrir homma og kynskiptinga (vil samt taka það fram að ég hef ekkert á móti hommum). Þetta er bara staðreynd!
[
posted
@
13:46
] [
]
fimmtudagur, maí 13, 2004
Kláraði stærðfræðiprófið í dag! Djöfull er ég sáttur því ég veit að ég náði. Var frekar sáttur við prófið, og þótti það nokkuð sanngjarnt. Einkunnin mí er einhversstaðar á bilinu 6-8, ef tillit er tekið til klaufavillna (verð allaveganna hissa ef ég er lægri). Var samt svo drullustressaður fyrir þetta próf. Þurfti til dæmis að fara út úr prófinu á klósettið tvisvar sinnum. Var gjörsamlega að fara yfirum. En... ...þetta er búið, svo no more stærðfræði... ...í bili.
Fékk frekar fyndið bréf í gær. Það var póstlagt í Þýskalandi, en innihaldið samt á íslensku. Þetta var frá samtökum grænfriðunga í þýskalandi sem voru að benda á ókosti hvalveiða okkar Íslendinga. Þetta var samt allt hálf skrýtið. Mér fannst eins og hann (gæinn sem skrifaði bréfið) væri að væla í mér út af því að hann gæti ekki heimsótt landið, á meðan við værum enn að veiða hvali. Eins og það væri eitthvað mitt mál! Ég heyrði um fleir sem fengu þetta bréf, og fannst þeim öllum þetta hálf weird. Þessir þýskarar gerðu víst eitthvað úrtak úr þjóðskránni og hef ég greinilega lent í því. Annars er mér nokkuð slétt hvort við veiðum hvali eða ekki, ekki borða ég þennan viðbjóð! Mér fyndist samt best að svona áróðursseggir létu mig bara í friði. Ég nenni ekki að dragast inn í einhverjar svona pælingar. Fannst þetta í rauninni bara hin besta skemmtun fyrir mig, svona til að taka stressið og hugann aðeins frá stærðfræðinni.
[
posted
@
17:58
] [
]
þriðjudagur, maí 11, 2004
Ég afsaka það að hafa verið lélegur að setja inn færslur síðustu dagana! Ástæðan fyrir þessu er að ég hef verið að læra eins og mófó undir stúdentsprófið í stærðfræði! Gæti samt gubbað, því ég er eiginlega að fá nóg af þessu öllu saman. Er skíthræddur fyrir þetta próf. Ég bið og vona um að ég komist í gegnum þetta, þó svo að ég rétt skríði. Ég vona bara að allt fari vel. Enda ekki hægt annað! Einnig vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem klára í prófum á morgun til hamingju með próflokin, og segi einnig: Skemmtið ykkur vel annað kvöld því að þið eruð ekki í þessum helvítis stúdentsprófum! Mér finnst eins og ég verði að fá útrás á einhverju eða einhverjum....
[
posted
@
23:13
] [
]
laugardagur, maí 08, 2004
Til hamingju Bassi! Chelsea búið að ná 2. sætinu. Get samt ekki sagt að þeir hafi verið mikip sannfærandi á móti ManU. Hef séð þá betri, örugglega bara þreyta. Samt helvíti skemmtilegur leikur á köflum Grönkjaer á skilið hrós fyrir eitt flottasta markið í deildinni, enda ligeglad dani. En nóg um það.
Skellti mér á hljómsveitaræfingu í gærkvöldi með ofurbandinu Heinrich Himmler. Það skipa ég sjálfur á gítar, Haukur gítar, Arnar bassafantur og Emil trommur. Æfingin gekk nokkuð vel fyrir sig, miðað við það að einhvernveginn vorum við allir fannst mér í einhverju fokki. Svo fengum við gest í tónleikahöllina okkar. Það var enginn annar heldur en mottan sjálf. Helvíti gaman að því. Þurfti reyndar frá að hverfa uppúr 11 til að aðstoð Guðríði við að ganga frá í vinnunni á þessum seinasta vinnudegi hennar. Hún var segja upp skítadjobbinu í Bónusvídeo. Ég vil benda fólki á að vera ekkert að versla í Bónusvideoi Grímsbæ, nema að illri nauðsyn, sökum þess að gæinn sem var að taka við rekstrinum er algjör suddi (vona bara að enginn sem les þetta sé skyldur honum). Þessi gæi þrífur t.d. aldrei neitt, eins og t.d. ísvélina. Það þýðir að ísinn súrnar og tjah... getur gert fólk frekar veikt sem fær sér. Einnig hefur hann þann háttinn á pulsunum að hann geymir þær ekki í pulsupottinum, heldur hendir einni (fer fjölda sem keypt er hverju sinni) ofan í pottinn þegar einhver biður um pulsu, lætur hana vera þar í mesta lagi í tvær mín, meðan hann hitar brauðið í ölbyrgjunni. Þetta þýðir að maður fær rétt yfirborðsheita pulsu í blautu og seigu brauði. Hreint út sagt viðbjóður! Ég er allavegann hættur að versla þarna, nema eins og ég segi af þá illri nauðsyn. Og djöfull þarf sú nauðsyn að vera mikil!!!
Er samt núna að fara að læra stærðfræði. Ég gæti hreinlega ælt á bækurnar, þetta er svo mikill djöfull. Eða eins og nokkrir sem ég þekki myndu orða þetta: Þetta er djöfulsins skull! Jæja, það er ekkert sem heitir, maður verður að klára þetta ef maður ætlar að ná!
[
posted
@
14:29
] [
]
föstudagur, maí 07, 2004
Hvað er málið með að láta mann þurfa að rifja allt upp frá því úr 2.bekk. Þetta tekur svo helvíti langan tíma. Er þó kominn vel að skrið, ætti að klára 3.bekkinn í dag, eða þ.e.a.s. í kvöld einhvertíman. Væri samt alveg til í að vera að gera eitthvað annað akkúrat núna, eins og t.d........... ..........fara á Hróarskeldu! Get ekki beðið eftir í því! Jæja, verð að halda áfram....
[
posted
@
15:22
] [
]
fimmtudagur, maí 06, 2004
Horfð á leikinn áðan. Skítt að Newcastle hafi ekki komist áfram. Leiðinlegt fyrir Bobby Robson. En eins og maður segir, svona er boltinn! Er annars bara búinn að vera að læra stærðfræði í dag. Ekkert sérlega mikil stemnig í því. En maður verður að gera þetta ef maður ætlar að ná....
[
posted
@
23:57
] [
]
miðvikudagur, maí 05, 2004
Þá er Chelsea dottið út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu. Geta sjálfum sér um kennt, sérstaklega "hlunkurinn" okkar hann Eiður Smári. Hann fór illa með nokkur færi, sem tjah... hefðu getað komið Chelsea í úrslitaleikinn. En eins og mér sé ekki sama, enda Arsenal-maður í húð og hár.
Hef ekkert að gera akkúrat núna. Er búinn að eyða tímanum efitr leikinn í að laga aðeins commentaboxið og linkinn inn á það. Er núna loksins ánægður með útlitið....
[
posted
@
21:46
] [
]
Var að koma úr stúdentsprófinu í íslensku. Gekk bara helvíti vel, held ég. Svaraði allaveganna öllu! Hitti mottuna og varð fyrir svolitilum vonbrigðum. Hann mætti ekki með donut í þýskuprófið! Gunni, þú verður að viðurkenna að svart-litaður donut er stíllinn fyrir þig! Jæja, hvað um það. Ég skora hér með á þig að mæta með vígtanna skegg í næsta próf. Það getur ekki klikkað!
Keypti mér líka flugmiða til Danmerkur í gær. Með öðrum orðum, ÉG ER Á LEIÐINNI Á SKELDUNA, BEIBÍ! Fékk loksins þetta frí í vinnunni sem mig vantaði og ákvað því bara að skella mér á miða. Ég reyndar ákvað að verða lengur en bara hátíðina, og ætlum ég Guðríður að vera þarna til 7.júlí. Djöfull held ég að þetta verði góður tími. Get þá líka kíkt á Hildi Bigzis og TM og haft það bara frekar gott. Hér er hægt að sjá hvaða bönd verða á þessrari massa hátíð. Nú byrjar maður sko að telja niður dagana....
[
posted
@
14:40
] [
]
mánudagur, maí 03, 2004
Þetta var geðveik mynd! það er engin spurnig. Er reyndar mikið á móti hléi í öllum myndum. Finnst það helvíti skítt að þurfa að hætta að einbeita sér að myndinni og þurfa að bíða eftir öllum sem fara fram að kaupa sér MEIRA að éta. Eins og það sé ekki búið að smjatta nóg yfir fyrri parti myndarinnar. Þetta var samt skárra núna því salurinn var ekkert svo stór (B-salur Laugarásbíós). Samt var það eitt fífl sem kunni ekki að haga sér. Það heyrðust alltaf frá honum einhver comment á hitt og þetta, samt aðallega útliti persónanna. Hey, mar... tékkað' á augabrúnunum mar... og ... hey, jói sérð' hattinn mar.... ! Svona gekk þetta út alla myndina. Mig klæjaði svolítið í lófana um að henda kókglasinu og popppokanum í hann. En samt tókst mér þó að leiða þetta hjá mér að einhverju leyti, og gaf gaurnum bara illt auga eftir sýninguna. Þá kom í ljós að þetta var einhver helvítis typpaostur (leit út fyrir að vera á fyrsta ári í menntaskóla). óþolandi hvað þetta selfoss-wannabe pakk er tillitslaust og ógeðslegt.
[
posted
@
15:50
] [
]
sunnudagur, maí 02, 2004
Djöfull er eitthvað lítið að gerast hjá manni núna. Bara búinn að vera lærandi undir stúdentsprófið í íslensku í allan dag. Ekki skemmtilegt það. Það er samt leiðinlegt að þurfa að hanga inni allan daginn og gera eitthvað sem maður gjörsamlega þolir ekki. Hlakka til að útskrifast (þ.e.a.s. ef einkunnirnar leyfa). Ætla samt að brjóta upp þessi leiðindi með því að skella mér í bíó, að sjá Bana Billa bindi tvö (eða Kill Bill version 2 eins og það útleggst á útlenskunni) með Guðríði. Hef heyrt að hún sé frekar mögnuð! Maður á samt ekki von á öðru, þegar meistari Tarntino rekur sig til. Er líka búinn að vera á smá bömmer, því ekkert er enn öruggt með skelduna eins og er. Málarameistarinn minn skellti sér í veiði um helgina og sleppti því að taka símann með sér, þannig að það næst ekki í hann. Ég hef þess vegna ekki fengið staðfestingu á vinnu enn (þó það sé eiginlega pottþétt), og það sem verra er: Veit ekki hvort ég fæ frí á þessum tíma. Vona bara það besta!
[
posted
@
20:43
] [
]
Djöfull horfði ég á vonda mynd í kvöld! Hún heitir Master of Disciuses. Ég næstum því grét yfir því hvað hún var léleg! Ég eiginlega vorkenni þeim sem voru djarfir að borga sig inn á hana þegar hún var sýnd í bíó! Að hugsa sér að hinn eini sanni Garth Algar (í raun Dana Carvey) úr Weynes World hafi látið plata sig út í þá vitleysu að leika í þessari mynd. Ég meina, hann fittaði helvíti vel við hliðina á Mike Myers í þeirri mynd. Synd að þetta skyldi fara svona. Ég held að leikferill Carveys sé um það bil að drepast. Dana Carvey R.I.P!
[
posted
@
00:25
] [
]
|