JP

 
   mánudagur, júlí 31, 2006  

Hoppa í polla..... á Klambratúni í gærkvöldi. Þetta voru geðveikir tónleikar. Það var fínasta veður, fáránlega mikið af fólki og tónlistin óaðfinnanleg. Vildi að þetta væri gert oftar. Stemmningin þarna minnti mig að nokkru leyti á Roskilde. Það kveikti undir löngunina til að fara þangað á næsta ári.

Fínt að komast svona í tölvu eftir tölvulausa helgi. Dell-inn minn crashaði bara á einhvern óútskýranlegan hátt. Þarf að fara að kíkja með hann í viðgerð. Ef þetta kostar samt meira en 30 þús kall (ekki hugmynd hvað kostar að gera við tölvu...) þá ætla ég að fá mér nýja. Og fá mér þá apple. Bara svona lítið kvikyndi, 12" gaurinn. Hef ekkert við meira að gera.

Annars var laugasrdagskvöldið frekar feitt. Fór í grillveislu til Bassa, þar sem Gunni eldaði gourmet- lamb og geðveikt meðlæti fyrir mig og hann. Ekki slæmt að láta bara kokkinn sjá um þetta fyrir sig. Eina sem ég gerði var að láta hann fá smá bjór. Það má segja að hann sé ódýrt vinnuafl. Held ég ráði hann til að búa heima hjá mér og sjá um allt svona í framtíðinni. Þetta var líka fínt að fá svona þ´jónustu eftir að hafa verið að hjálpa Óla við að flytja um daginn. Loksins að hann geti komið sér vel fyrir þarna uppfrá. Skrýtið samt að það sé annað fólk að fara að búa þarna niðurfrá á Laugalæknum. Já, svona breytast tímarnir...

Kíktum svo í bæinn eftir gott session hjá Bassa. Get svarið það! Hversu margir fengu þá hugdettu að fara í bæinn á laugardaginn. Var eitthvað annað að gerast sem getur útskýrt þennan fjölda, eitthvað sem fór alveg fram hjá mér? Það voru hálftíma raðir allstaðar fyrir utan. Fólk var víst líka bara að éta sveppi og sýru, því það varð víst allt vitlaust. T.d. þetta með eyrað á stráknum. Bara bitið stykkið úr því. Var reyndar sagt í gærkvöldi aðeins meira frá því atviki, og komst að því að ég þekki bitmanninn ágætlega. Ólíklegasti maður á Íslandi til að gera þetta! Eða það hefði ég haldið. Var fullt tungl þetta kvöld, eða...? En eitt veit ég, og það er að þessi maður verður bannaður inni á Kaffibarnum það sem eftir er...

Næsta helgi verður aftur á móti frábær!!! Get ekki beðið eftir því að þessi vika klárist og helgin sem kennd er við verslunarmenn kemur. Verð í bænum, því það er the place to be. Þá kannski verðu ekki svona fjölmennt eins og var um helgina. Krosslegg fingurna og vonast eftir góðu veðri!

   [ posted  @ 08:14 ] [ ]



   föstudagur, júlí 28, 2006  

Er ennþá að vinna í að koma helv... linkunum hingað til hægri..... er núna neðst á síðunni. Lagast kannski í dag... vonandi. Núna sést það hvað þessi föstudagur er rólegur hjá mér... :)

   [ posted  @ 15:08 ] [ ]


 

Vá, hvað ég var að vakna. Ekki neitt sérlega ferskur á föstudagsmorgni. Dreymdi líka mjög súran draum í nótt þar sem ég átti að vera Harry Potter. Ekki spurja mig afhverju. Var mjög súrt og óskiljanlegt allt saman....

Fór að læra í gær með Hauki niðri í Skógarhlíð. Held að við höfum samt meira verið að fara þarna sem afsökun. Lærðum bara aðeins, hlustum svo á tónlist, horfðum á myndbönd á netinu og pöntuðum okkur Devitos. Ohhhh... það eru svo feitar pizzur. Er að verða svangur við tilhugsunina.

Annars var ég að fá þær fréttir að Palli er að koma í bæinn frá Akureyri. Hann hringdi í mig í gær til boða þetta fagnaðar erindi. Að sjálfsögðu skellum við okkur í bæinn, og gerum eitthvað gott. Býst samt við að það verði á laugardeginum. Hann er nefnilega að fara að keppa í einhverju strandhandboltamóti á Nauthólsvíkinni á laugardeginum. Endilega allir að mæta og fylgjast með liðinu uppgjöf.

Núna er föstudagsletin að kikka inn. Spurning hvort maður fari og skelli í sig nokkrum bollum af kaffi til að koma heilanum af stað. Hann er algjörlega frosinn. Það er þess vegna sem mér dettur ekkert ógeðslega skemmtilegt í hug til að skrifa hérna akkúrat núna... Kemur kannski önnur færsla seinna í dag. Já, og svo með tölvuna mína..... ....hún crashaði alveg illa!!! Djö...

JP kveður hálfsofandi í skrifborðsstóla svefnstöðu...

   [ posted  @ 07:51 ] [ ]



   fimmtudagur, júlí 27, 2006  

Bara kominn hádegismatur. Þetta er svo fljótt að líða. Það er líka skítaveður úti svo maður er feginn að vera inni. Sit hér í tölvu í annarri skrifstofu í vinnunni. Jess, þar er msn og allt það sjitt. Það hefur nefnilega ekki verið sett upp á minni, og ekki hægt að gera það nema að maður sé administrator.

Held að fartölvan mín hafi crashað í nótt. Veit það samt ekki. Var bara blár skjár með fullt af tölum á þegar ég vaknaði. Held að það hafi eitthvað með plássleysi á henni að gera. Afber það ekki ef hún er eitthvað fokkt. Er orðinn of háður tölvum núna. Þarf bara að kíkja á þetta þegar ég kem heim.

Svo er helgin víst að verða fullplönuð. Alltaf þegar maður ætlar að gera eitthvað rólegt, þá býðst eiithvað sem maður getur ekki hafnað (en heldur ekki samþykkt-> fólk fattar þennan ef það tekur Línu og töl í lyfjafræði)! Ok ég skal ekki koma aftur með svona vonda brandara. Er bara eðlislægt hjá mér. Vann hinn svokallaða "kaffibrúsa" niðri í Haga í prófatíðinni, fyrir að skotið inn sem flestum vondum bröndurum. Ekki slæmt það! Já, en svo ég komi aftur að planinu...

Ætli maður verði ekki aðeins að læra á morgun... og hafa það svo rólegt um kvöldið. Kíkja kannski á strákana. Þarf líka að borga leigu fyrir æfingahúsnæðið.
Svo er það flutningur með Óla á laugardaginn sjálfan. Um kvöldið skilst mér svo að sé grillveisla. Þarf samt að tékka á Hauk, til fá að vita betur með það. Eftir hana þá veit maður aldrei hvar maður endar. :)
Sunnudagurinn verður svo notaður í að læra (eða allavegana reynt að gera það...). Svo kíkir maður að sjálfsögðu á Klambratúnið með 2-3 litla bjóra og tékkar á Sigur Rós. Mæli með að sem flestir geri það.

Ætla samt ekki einvherjir að gera eitthvað feitt á laugardeginum??? Er allavegana til í eitthvað. Endilega látiði vita ef það er eitthvað plan.

Svo svona til gamans þá var mér bent á það að ég hef aldrei skrifað jafn ört á þetta blogg frá upphafi. Hefur held ég að meðaltali liðið um vika (ef ekki meira) milli færsla. En hey... batnandi manni er best að lifa, og það er ágætt að einhver nennir að lesa þetta. Síðan er samt orðin slöpp, þarfa að koma með nýtt útlit, uppfæra linka og gera hana aðeins líflegri. Þetta er allt í vinnslu, og kemur fljótlega. Hún kemur líka eitthvað funky út í Internet Explorer svo það þarf að laga það líka.... Ekki örvænta, þetta kemur allt von bráðar.

JP kveður og horfir glottandi á unglingavinnuna úti í rigningunni...

   [ posted  @ 12:10 ] [ ]



   miðvikudagur, júlí 26, 2006  

Ferskur að vanda svona snemma á morgnana. Mætti auðvitað fyrir klukkan 8 í morgun. Þetta er ágætis æfing fyrri það sem koma skal í skólanum. Ef ég verð hér heima þá fæ ég ágætis stundatöflu sýnis mér. Sá drögin af henni í gær. Ennþá samt smá óákveðinn með hvað ég geri.

Fór út að hlaupa með Gunna í gærkvöldi. Það var helvíti fínt. Ætlum að endurtaka þetta fljótlega.... kannski bara í dag. Fínt að hafa einhvern til að skokka með manni. Það fær mann svona til að hlaupa lengur, og jafnvel ekki viðurkenna að maður sé orðinn þreyttur :) Ágætt líka að gera þetta eftir að maður er búinn að vera að rembast við að læra um daginn strax eftir vinnu. Búinn að ákveða það að ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að að þurfa aldrei að taka sumarpróf aftur!!!

Svo kom jafnvel upp sú pæling í dag að skella sér í River-rafting í Skagafjörðinn á laugardaginn. Hugmyndin kemur víst frá Konna. '83 strákarnir eru allavegana að fara að skella sér. Ég væri feitt til í að fara, en þarf að sjá hvort Óli ætlar að flytja um helgina. Hafði nefnilega lofað honum að hjálpa. Maður getur nú ekki svikið það....

Er núna að detta smá í barndóm hvað varðar sjónvarpsefni. Þegar ég kem heim í dag verð ég búinn að sækja alla fyrstu seríuna af X-files. Man ekkert hvernig þeir þættir voru, en ég man að ég horfði alltaf á þá. Ákvað að taka svona smá flashback á þetta. Hef nefnilega alltaf misst af þeim á sirkus. Það er líka ágætt að byrja þá á byrjuninni.

Sá annars Magna í gær og fannst hann frekar slappur. Þetta var heldur rólegt fyrir minn smekk. Fannst hann svolítið vera að reyna að stæla Bowie of mikið, og það vita það allir að Magni er enginn Bowie. Spurning hvernig honum gengur í kvöld þegar úrslitin verða kynnt.

Samt er það eitt sem ég hef alltaf velt fyrir mér. Spáið í því ef maður gæti vitað nákvæmlega hvernig framtíð manns yrði. Væri það illa feitt eða ömurlegt? Myndi maður bara setjast niður og bíða eftir að eitthvað gerðist, myndi maður reyna að gera allt til þess að streitast á móti henni, eða myndi hreinlega drífa sig í að koma öllu í verk sem maður vissi að maður ætti eftir að gera. Alltaf spurning með þetta mál. Auðvitað eru það einhverjir sem trúa því ekki að hægt sé að sjá framtíðina, og segjast móta framtíð sína sjálfir. Allt gott og blessað með það. Þeir yrðu ekki í vandræðum með að leiða þessa pælingu hjá sér og lifa bara dag fyrir dag. Aftur á móti fyrir mína parta þá langar mér til þess að trúa því að allt sé fyrirfram ákveðið, og í raun hafi maður eitthvað ákveðið hlutverk til að gegna á jörðinni. Svo þegar því hlutverki er lokið er maður reiðubúinn til að fara. Ótrúlega einföld hugsun, ég veit. En einhvernveginn finnst mér hún samt eitthvað svo rökrétt. En eins og ég segi, þá er þetta bara pæling, og já... ég er ekki herra alvitur.

JP kveður í bili með kjánahroll eftir að hafa horft á lagið hjá Magna aftur í tölvunni....

   [ posted  @ 09:12 ] [ ]



   þriðjudagur, júlí 25, 2006  

Ahhh kominn nýr dagur og alltaf styttist í það að maður hætti að vinna. Ef ég tel daginn í dag með, þá eru nákvæmlega 12 vinnudagar eftir af sumrinu. Ætla að hætta 11 ágúst til að læra í viku fyrir þetta helvítis próf. Spurning samt hvort maður vinni svo vikuna 21. - 25. ágúst ef manni vantar pening...

Jæja, kóngulóin er farin. Er viss um að einhver hefur drepið hana. Gruna nokkra, en veit þó að hún var hérna í gær þegar ég fór. Samt feginn að vera laus við þetta kvikindi!

Kíkti svo aðeins á Hlyn og Baldur í gærkvöldi. Þar var í gangi skipulagsmál fyrir "nýju" íbúðina þar sem Linda og Baldur flytja inn í ágúst. Ég Hlynur ætlum að hjálpa þeim að mála hana og koma henni í stand. Held þetta verði massa íbúð. Baldur er allavegana búinn að kaupa fullt af hlutum til að setja þarna inn. Væri ég til í LCD sjónvarpið, og já heimabíóið sem hann keypti. En hey.... ég er fátækur námsmaður. Þetta kemur víst allt seinna hjá manni, segja þeir. Munum örugglega vinna í íbúðinni helgina og vikuna eftir prófið hjá mér. Hlynur, Óli og Ommi eru nefnilega að fara til Benidorm 10.-17. ágúst. Hentar mér fínt segi ég nú bara.

Svo er það náttúrulega Supernova í kvöld. Ætli Magni kalli alla bitches aftur eins og hann gerði um daginn. Verð nú að viðurkenna að álit mitt á þeim manni hefur stóraukist með þessum þáttum. Hann er búinn að vera að standa sig ágætlega, og sýndi það með "Plush" hversu ágætis söngvari hann er. Er reyndar ekkert sérlega mikið að fíla hann á sviði, en það hlýtur að koma hjá honum. Hann þarf bara aðeins að losa sig við þessa "Á móti sól"-takta. Hann fær allavegana big respect frá mér fyrir að hafa náðs vona langt!

"Morgunstund gefur gull í mund" eins og einhver sagði. Er ekki alveg að sjá þetta gull. Er svosem ekki þreyttur, bara latur. En hey.... þetta styttist. Væri samt til í að vera á Portúgal eins og Sandra, eða í Ástralíu eins og Tóti og Vignir. Aðeins betra veður, engar áhyggjur og engin vinna. Kannski maður púlli eina ferð til Köben á Hildi systur fyrir áramót. Það væri ekki leiðinlegt. Sjá bara um jólainnkaupin þar? Alltaf spurning...

JP kveður í bili og ætlar að fá sér kaffi...

   [ posted  @ 07:48 ] [ ]



   mánudagur, júlí 24, 2006  

Það er alltaf gott að mæta í vinnuna fyrir klukkan 8. Þá veit maður að það er hægt að sleppa fyrr heim. Það er æðislegt sérstaklega ef það er gott veður. Þarf reyndar að læra í dag (helv... sumarpróf) og ætla því að skella mér á bókhlöðuna eftir vinnu. SPurning hvort og hversu lengi hún sé opin?

Það er kónguló í gluggan fyrir aftan mig sem er busybusy við gera einhvern massa vef. Hef það ekki í mér að reyna að rústa þessu fyrir henni. Þeir sem þekkja mig vita að ég er með hálfgerða fóbíu fyrir þessum annars meinlausu dýrum. Spurning um að fá einhvern annan í málið þegar fleiri mæta. Er sá eini sem er mættur í vinnuna akkúrat núna.

Helgin var annars bara ágæt. Þarf kannski samt að eins að fara að slappa af svona í bjórdrykkjunni. Það fóru nefnilega fimmtudagur, föstudagur og laugardagur í þá iðkun. Kannski að reyna að spara aðeins um næstu helgi, en hey.... hver veit nema að eitthvað feitt sé að gerast þá líka!?!

Föstudagurinn var reyndar smá undarlegur þegar leið á kvöldið. Baldur Helga lenti í einhverjum gaur sem vildi víst slást við hann. Skil ekki svoleiðis fólk. Þessu gaur var líka frekar sorglegur, bara nafnið sem hann kalliði sig segir allt um það. Hann kallaði sig Pocahontas. Seinast þegar ég vissi þá var Pocahontas kvenmaður! Allavegana, þá bara drulluðum við okkur í burtu eftir að hafa aðeins skipts á orðum við þennan ógeðisgaur (já og hann var með asnalegasta pony-tail sem ég hef séð!) Hittum þá einhverja íra sem vildu ólmir lenda í slagsmálum. Bentum þeim á kauða og komum okkur svo heim. Þarna var klukkan held ég um 7 að morgni. Skrýtið að fólk sé að leita sér að einhverjum slagsmálum þá.... ég vildi helst bara koma mér heim að sofa!

   [ posted  @ 07:54 ] [ ]



   föstudagur, júlí 21, 2006  

Hefði betur reynt þessa hugmynd mína sem ég birti í síðustu færslu. Sit hérna núna ekki neitt sérlega ferskur á því og spái í því hvenær ég ætti að fara heim. Er alveg hakkaður og ekki þurfti mikið til! Skellti mér á útgáfutónleika hljómsveitarinnar Reykjavík! í gærkvöldi með Bigga, Snorra og Baldri. Voru feitir tónleikar, en samt leiðinlegt að Jeff Who gat ekki hitað upp. Söngvarinn þeirra var víst veikur. Held að í gær hafi nokkrir bjórar klárlega breyst í marga. Allavegana segir hausinn á mér það núna í morgun. Heldur aldrei mætt svona seint í vinnuna. Var að mæta hérna núna, eða rétt um 9. engan veginn að nenna að koma mér af stað. Svo held ég samt að kvöldið verði fetta sjæse. Byrja á að fara í grillpartý til Andra. Líst vel á það. Mmmmmm.... bjór og kjöt..... það á vel saman. Ætla samt svo að kíkja í innflutningspartý til Kristínar og Hrafnkels. Veit ekki samt alveg með það. Fínt að hitta þau þarna og allt... en maður finnur samt að maður er minna velkominn heldur en maður var. Ekki kannski af þeirra hálfu, en margra annarra. Finnst það samt svolítið fyndið. Alltaf þegar maður er í þeirri stöðu sem ég er í núna og fer og hittir vini fyrrverandi kærsutunnar, þá verða öll samskipti við sumt af þessu fólki svo þvinguð. Hafiði velt þessu fyrir ykkur? Þetta er náttúrulega hlægilegt. Það er eins og fólk viti ekki alveg hvernig það eigi að vera... En ætli ég verði nú ekki að sýna lit og kíkja við, svona rétt til þess að viðhalda vinskapnum við Guðríði.

Það er samt pottþétt að ég ætla niður í bæ í kvöld! Fer örugglega og hitti strákana aftur eftir þetta innflutningspartý. Langt síðan að ég hef farið með þeim öllum á skrall. Alltaf góðir tímar þegar það gerist... Jæja, back to work eins og kallinn sagði...

JP kveður í bili og fer að leita að hausverkjartöflum...

   [ posted  @ 09:09 ] [ ]



   fimmtudagur, júlí 20, 2006  

Sit hérna í vinnunni og Lotusinn liggur niðri (tölvukerfið sem ég vinn í). Hef semsagt þá ekkert annað að gera. Afhverju er ekki hægt að gefa frí þegar það er gott veður, alveg eins og þegar það er vont veður? Er að spá í að láta reyna á það á morgun að hringja mig inn veðurtepptan. "Halló, Lyfjastofnun?... Þetta er Jón Pétur sem vinnur hjá ykkur. Já, veistu, ég sé mér bara ekki fært að mæta í vinnuna í dag vegna veðurs.... Ég er nefnilega hálf fastur úti í garði...". Ætli þetta virki? Það væri samt frekar feitt. Ég þekki samt í raun bara einn mann sem myndi í alvörunni prófa þetta. Já, Andri, auðvitað er ég að tala um þig!

Annars var þriðjudagskvöldið frekar feitt (hefði sagt næs, en sökum gagnrýni þá hef ég ákveðið að setja það aðeins á ís...). Skellti mér á kaffihús með Bigga (aka Da amazing B-Man) í fyrradag. Það var fínt. Fengum okkur nokkra bjóra (hvenær hætta annars bjórar að vera nokkrir og verða margir?) og ræddum málin. Var búinn að gleyma því hversu vanmetið það er að fara á kaffihús á virkum degi og fá sér smá bjór. Eitthvað sem maður á eftir að gera oftar í framtíðinni...

Í gær skellti ég mér svo í fótboltatennis með strákunum. ÞAÐ er vanmetin íþrótt. Reyndar eru Gísli og Addi hommar í mínum augum vegna þess að þeir hafa eitthvað sem heitir skítaheppni! (nei nei strákar ég er ekki bitur þó ég hafi alltaf verið í tapliðinu!). Finnur er reyndar maður kvöldsins eftir að hafa leikið "selinn"þó nokkrum sinnum. Sáum svo síðustu 20 mínúturnar af leik hjá þróttarastelpunum þar sem þær rústuðu einhverju liði 11-0. Hefði getað farið verr, ef markmaðurinn hjá hinu liðinu hefði ekki verið svona góð! Eini ljósi punkturinn í því liði. Meira að segja skoraði sweeperinn "okkar" hún Olla eitt af glæsilegri mörkum leiksins. Til hamingju stelpur! Ef þetta gengur svonavel í sumar þá fariði einfaldlega upp. En jæja Lotusinn var víst að smella inn svo ég ætla bara að halda áfram að vinna...

JP kveður innilokaður og með útþrá...


   [ posted  @ 12:40 ] [ ]



   þriðjudagur, júlí 18, 2006  

Þá er maður kominn úr sólinni í Köben í tjjaahhh... íslenskt sumarveður. Finnst það svosem fínt. Kælir kannski aðeins niður sólbrunann sem ég fékk þarna úti. En já, kannski að maður ætti að koma með smá ferðasögu, eða allavegana nefna það helsta sem ég gerði.

Fimmtudagur: Flaug frá Keflavík klukka 8 um morgun og var lentur um 1 leytið að dönskum tíma úti. Hitti Óla Rauða (gamall bekkjarbróðir) á Kastrup þar sem við biðum saman eftir töskunum. Það var fínt. Hef nefnilega lítið séð af gömlum bekkjarfélögum úr MS. Hann var svo að fara að halda áfram til Ungverjalands frá Köben. Eftir að hafa komið mér til systur minnar og losað mig við farangurinn, þá var stefnan tekinn á bæinn (já ég veit, ég er eins og versta stelpa þegar kemur að því að versla). Þar tókst mér að kaupa mér inn frekar mikið, eða u.þ.b. 6 poka úr 6 mism. búðum. Það gerðist aðeins á tveimur klukkutímum. Shit, hvað ég held að systir mín hafi verið þreytt á að burðast með þessa poka með mér :) Komum okkur svo heim eftir að hafa séð að við gætum ekki mögulega haldið á meiru heim. Þá fórum við að undirbúa "mini" grillveislu þar sem nokkrum vinum systur minnar og TM var boðið. Það var frekar næs, bara grilla fá sér bjór og hafa það dejligt í góða veðrinu. Góður endir á góðum degi.

Föstudagur: Vöknuðum í hádeginu við það að iðnaðarmennirnir úti voru farnir að reyna að gera hvern annan heyrnarlausan, og þar með okkur í leiðinni. Geðveik læti í þessum gaurum. Svo sem ágætt, því búðirnar biðu sjóðandi heitar eftir að við myndum mæta á svæðið. Var ekki lengi að taka til hendinni þegar við komum í bæinn og verslaði álíka mikið og daginn áður. Skelltum okkur á kaffihús og höfðum það frekar næs það sem eftir var af deginum. Stefndum nefnilega á Tivoli um kvöldið til að sjá Jamie Cullum spila, og ætluðum líka að fá okkur að borða þar á stað sem heitir Wagamama. Í Tivoli hittum við Guðrúnu og Kollu systur hennar. Guðrún er ein af bestu vinum systur minnar. Það var næs. Ég og TM ákváðum þetta kvöld að við ætluðum að fá okkur frekar mikinn bjór og verða eins og hann sagði: Skidefuld! Það plan gekk svona semi eftir, því ég drakk bjórinn minn svo hægt. Var nefnilega að fylgjast mikið með tónleikunum, sem voru by the way fáránlega góðir! Enduðum svo á einhverjum kokteil bar niðri í bæ áður en við fórum heim.

Laugardagur: Það var lítið verslað þennan daginn, bara svona rétt aðeins að klára það sem byrjað var á daginn áður. Fórum niður í Nyhavn og fengum okkur beyglu í góða veðrinu, löbbuðum aðeins um hittum svo Möggu frænku og Smára kærasta hennar á kaffihúsi. Það var ágætt, var að hitta þennan Smára í fyrsta skipti, og var hann bara frekar fínn gæi. Komumst svo að því að við hefðum í raun lítið að gera þarna niðri í bæ, annað en að skoða, svo við ákváðum að taka eina sightseeing kanal siglingu. Var frekar næs því maður áttaði sig meira á borginni eftir að hafa gert þetta. Um kvöldið fórum við svo út að borða á Spicilicious, veitingarstaður sem stendur við Istedgade. Þetta er víst einhver nýr "inn" staður í Köben og er ég ekki hissa á því. Hann var fáránlega góður! Fórum svo á Vega til að hitta vini TM sem heita Paul, Per og Alex. Það var frekar fínt, því þessir flottræflar splæstu allt áfengið á okkur þetta kvöldið. Ágætt að spara aðeins peninginn. Hitti líka Hjalta félaga og myspace vin minn á Vega (eða staðnum við hliðina). Okkur fannst það fáránlega tilviljun, þar sem að hvorugur okkar hafði komið þangað áður. Shit en þetta kvöld var langt og mikið drukkið. Feginn að það var rólegur dagur í vændum daginn eftir...

Sunnudagur: Lítið annað gert en að verða sólbrenndur og slappa af. Fór á ströndina út á Amager, og ég get svarið það: Mallorca hvað!?! Það var svo heitt að mér leið eins og ég væri á spáni. Enda kom ég þrílitur heim. Hvítur, aðeins brúnni og svo RAUÐUR. Já, gerði mér kannski ekki alveg grein fyrir því að ég þyrfti að nota sólarvörn! :) Flaug svo heim um kvöldið eftir 4 tíma seinkun og var lentur hér heima að verða 2 um nóttina.

Já, þetta var frekar mikil stytting og einföldun á því sem ég var að gera þarna úti, en ég bara nennti ekki að skrifa nákvæmar lýsingar. Hefði verið að því allan dag, og þá hefði þetta verið svo langt að enginn myndi nenna að lesa. Þessi ferð var samt ljós punktur á sumrinu hjá mér, sem hefur verið..... já, orðum það frekar þannig: gæti hafa verið betra. Fínt samt að kúpla sig frá hlutunum í nýju umhverfi og sjá hlutina öðruvísi.

Hlakka til að byrja í skólanum. Býst við að verða hér heima (þó ég loki nú ekki á hitt strax). Bara ekki gaman að fara einn út. Svo er líka svo gott fólk í deildinni hér heima, sem maður myndi sakna (yeah you know who you are!).

Þakka fyrir allan þann stuðning sem fólk er að sýna mér (hljóma eins og versta kelling og aumingi). Bara erfitt að brjótast úr viðjum vanans. Má kannski svolítið líkja þessu við að hætta að reykja. Erfitt til að byrja með en verður svo alltaf léttara og léttara. Varast hugsunina um að byrja aftur, því það er ekki gott fyrir mann (og er ekki að fara að gerast) og vita það að lífið verður svo miklu betra þegar þetta er yfirstaðið. Ætli það eigi svo sem ekki við um alla erfiðleika...

En já... ætla núna að hætta í bili. Verð nefnilega að vinna líka eitthvað aðeins. Ætla samt að reyna að hafa styttri tíma milli greina í framtíðinni, því þá verða þær styttri og auðlesnari.

Kjörorð síðustu viku: Skál fyrir framtíðinni!

   [ posted  @ 08:00 ] [ ]



   fimmtudagur, júlí 06, 2006  

Hvert er hámark þolinmæðinnar? Oft velt þessu fyrir mér. Hvenær er komið að því að maður gefst bara hreinlega upp. Ég er nú ekki þessi týpa sem gefst auðveldlega upp, frekar sú sem heldur áfram og áfram og áfram. Já, ég get verið þessi leiðinlega ( og stundum óþolandi) þrjóska týpa. Vá hvað maður sér stundum hvað það getur farið í taugarnar á fólki.... Hahahahaha....
Nei svo ég haldi nú áfram með pælinguna. Ég held að ég hafi sjaldan "droppað" einhverjum hlut, nema að ég væri alveg 120% viss um að ég gæti ekki gert neitt til að laga/breyta honum. Galli
segja sumir, kostur segja aðrir. En hvenær veit maður samt að maður er bara farinn að hjakka í
sama gamla farinu, koma engu áleiðis og í raun endurtaka sig? Þetta hefur alltaf verið mér
frekar stór spurning. Og henni er kannski ekki auðsvarað. Finnur maður þetta bara á sér? Er það einhver sem grípur inn í og segir: "hey, hvern djöfullinn ertu eiginlega að gera núna!?!" ? Held að þetta dansi allt saman á fínni línu milli þrjósku og þráhyggju. Og þá er nú betra að vera
þrjósku megin...

Og eru það kannski einfaldlega sumir hlutir sem maður bara getur ekkert lagað, þrátt fyrir að reyna og reyna?Er það þá í rauninni fyrirhöfnin en ekki útkoman sem skiptir máli. Þarf maður að reyna bara til að friða sjálfan sig,þó maður vita að það skili manni ekki neinu. Þetta er stór spurning. Vildi óska þess að ég vissi svarið við henni. Það er ekki hollt að bíta einhvern hlut í sig, vegna þess að ef maður getur ekkert gert til að breyta honum (eða finnst manni ekkert geta gert)þá sest það í mann og fær manni til að líða illa. Eflaust átta sig einhverjir á af hverju ég er að velta þessu fyrir mér, og geta þeir þátekið þetta inn og spáð í þessu. En svona hugsa ég víst þessa dagana.... allt á þessum nótunum....

   [ posted  @ 08:31 ] [ ]



   mánudagur, júlí 03, 2006  

Afhverju þurfa sumir hlutir að vera erfiðir? Og verða einmitt þegar maður hélt að þeir væru að verða auðveldir. Þetta er kannski bara gangur lífisins. Að búast alltaf við því versta. Ef maður gerir það, þá er maður kannski alltaf að baktryggja sig fyrir einhverju. Maður væri þá farin að minna á eitthvað tryggingafélag, og borga tilfinningar í stað peninga, til að geta fengið innihald þeirra svo til baka þegar eitthvað gerist. Svoleiðis ganga hlutirnir bara ekki. Hef þurft að læra það með smá bitri reynslu. En reynslan er góð (bæði slæm og góð reynsla). Hún er trygging okkar (og áminning á) að geta séð hvert hlutir stefna áður en þangað er komið. Reynslan er í raun til staðar til að minna mann á og gefa manni valið hvort að sagan eigi að endurtaka sig. Þegar uppi er staðið er maður sá sem ákveður það sjálfur.

Erfiðleikar gera ekki boð á undan sér og maður þarf því að geta tekið þeim þegar þeir koma, en ekki búa sig undir þá. Ef maður er alltaf að búa sig undir eitthvað þá er í raun erfiðleikinn alltaf til staðar. Maður þarf kannski að átta sig betur á því. Svo sýnir maður hvaða innri mann maður hefur að geyma þegar mðaur tekst á við erfiðleikana. Þetta eru sannleikskorn sem maður gerir sér alltaf grein fyrir, en á svo kannski erfitt með að sjá skóginn fyrir trjánum þegar í stöðuna er komið.

Þegar allt er gott lifir maður svolítið í framtíðinni, en þegar allt virðist streyma á móti manni lifir maður í fortíðinni. En til að takast á við vandamál og erfiðleika þarf maður í raun að lifa í nútíðinni. Auðvelt að segja og slengja þessu svona fram en erfiðara að fara eftir´. Máttur vanans er alltaf mjög sterkur og getur haldið manni í langan tíma. En um leið og hann losar takið þá er framtíðin björt og þá sér maður að lífið brosir við manni. Nú ætla ég að vitna í ákveðinn speking að nafni Mick Jagger.... (eitthvað á þá leið....)
"You cant always get what you want, but if you try sometime, you just might find that you get what you need..........."
Sönn orð sögð af sönnum manni......

   [ posted  @ 11:35 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]