JP

 
   sunnudagur, september 26, 2004  

Er bara búinn að vera einn heima alla helgina, því mutter og far skelltu sér til köben að hitta Hildi systur. Ég er því búinn að lifa á bónuspítsum og snakki allan þennan tíma. Gerði mér reydar dagamun í gær og fékk mér McDonalds. Skellti mér svo í afmæli til Hildar og svo niður í bæ. Það var frekar fyndið. Addi var með fullt af Sooter- VIP miðum (ekki spurja mig afhverju) og fórum við því að scooterdjamm á pravda. Þar hittum við fólk eins og Smára og Helga Má og svo scooter sjálfan. Þetta fólk lýsir svona eiginlega ógeðis stemningunni sem var þarna inni. þannig að við vorum ekki lengi að drulla okkur út, hlæjandi eins og vitleysingar af þessum hálfvitum. Reyndar var næstum búið að henda okkur út því Addi var eitthvað rugla rosalega í lífvörðum Scooter. Addi vildi eitthvað fá að segja við aflitaða gimpið, en lífvörðurinn tók alltaf af honum VIP passann. En addi var með alveg fullt af þessu drasli og sótti því bara næsta passa í vasann og rétti lífverðinum. Þetta svona í smá tíma, þangað til að við drógum adda út með okkur. Annars hefði hann örugglega fengið 1 á hann. fór líka á Ara og einhverja fleirir staði en endaði svo á pronto og fékk mér pizzu. Svo lá leiðin bara heim.

   [ posted  @ 16:36 ] [ ]



   þriðjudagur, september 21, 2004  

Þetta er búinn að vera hálf leiðinlegur dagur í dag. Kannski ekki alveg hundleiðinlegur, meira svona þungur/hægur dagur. Vaknaði í morgun við símhringingu frá Guðríði um að hún væri veik og kæmist ekki í skólann. Þannig að ég mæti í skólann og sest mjög utarlega í odda 101. Þar var að fara byrja stærðfræðigreining 1C. Ég mætti fullur af bjartsýni eftir að hafa skoðað kaflann sem átti að taka fyrir í tímanum daginn áður, og taldi mig hafa þetta svona nokkurnveginn á hreinu. Timinn fer hægt af stað og hann byrjar í einhverju sem ég hafði aldrei séð áður. Ég héld að hann værir bara að kom efninu af stað með einhverju sjitti, en þegar næstum allur tíminn var liðinn, þá leist mér ekki á blikuna. Mig langaði til að standa upp, kalla: ,,Hættu að fokka mér svona mikið upp!" og labba út. Ég gerði það samt ekki. Jæja, eftir tímann ákvað ég að vera kátur og mæta í fyrirlestur niðri í Haga. Hann reyndist vera frekar leiðinlegur, aðallega talað um hvað lyfjafræðingar gera á niðrir á LSH. Mætti svo í efnafræði í H1 með Hrafnkeli. Þar las gaurinn bara upp á glærunum eins og hann hefði aldrei gert neitt annað og bombaði svo á okkur geðveikt löngu dæmi þar sem maður hélt varla í að skrifa. Kom svo bara heim og ákvað að læra stærðfræði. Maður verður víst að reyna að skilja þetta eins og rjúpan gerði við staurinn hér áður fyrr. Maður má víst ekki hætta fyrr en maður skilur, eða fellur. Það er bara annað hvort.

Heyrði svo í Arnari í dag. Arnar: Mér líst helvíti vel á þennan Krueger Combo. Ég held að þú ættir að reyna að fá þér hann!

   [ posted  @ 19:43 ] [ ]



   sunnudagur, september 19, 2004  

Djöfull var ég búinn að gleyma hvað súkkulaði er ógeðslega gott...

   [ posted  @ 20:10 ] [ ]



   miðvikudagur, september 15, 2004  

Var að koma heim úr vinnunni, eftir að hafa líka verið í skólanum í allan dag. Gott að vera loksins kominn heim og geta slappað af. Það er erfitt að vera fátækur vinnandi námsmaður í dag...

   [ posted  @ 21:25 ] [ ]



   þriðjudagur, september 14, 2004  

Það er mikið að maður kemst til þess að skrifa hérna á bloggið. Það er búið að vera allt á fullu síðan um helgina. En núna hef ég færri afsakanir til að blogga minna, því ég er loksins búinn að leggja netkapal inn til mín, svo núna sit ég í fyrsta skipti við skrifborðið mitt á netinu. Tilfinningin er álíka eins og að hfa þróast úr apa í mann (eða allavega eitthvað í áttina að því). Já, en olla, fyrst ég var búinn að lofa að koma með sögu af nýnemadjamminu, þá er alveg eins gott að hún komi núna.

Allaveganna já, eins og ég var kannski búinn að nefna, þá var nýnemadjamm á föstudaginn seinasta. Kvöldið byrjaði á því að við lyfjafræðinemar á fyrsta ári, mættum niður á Gauk og stöng í smá fyrirpartý um 6-leytið. Þá var svona vandræðisstemmning yfir öllum. Æi, þið kannist við þetta, það veit enginn hvað hann á að segja og þorir varla að horfa framan í næsta mann. En sem betur var áfengið ódýrt (stór bjór á 290 og skot á 350) þannig að málbeinið varð liðugra strax undir lok fyrsta bjórs. Eftir tvo stóra var fólk svo almennt á því að fá sér eitthvað að éta áður en efri bekkingar gætu tekið okkur fyrir þannig að Guðríður og stelpa sem ég helda að heiti Eva María tóku sig til og pöntuðu sudda-pizzur á Pizza 67. Það var svosem allt í lagi, þar sem fólk var hvort sem er að ganga rösklega í gegnum gleðinnar dyr (já og sumir hlupu eiginlega). En svo kom að því að klukkan var bara orðin hálf níu og þá tókum við okkur til og löbbuðum upp í lögreglusalinn í Brautarholti, þar sem átti að busa okkur. Við mættum þangað og fengum þá nafnaspöld um hálsin sem tilgreindu hvort við værum á lausu eða á föstu. Svo hófst uppboðið. Okkur var skipt í hópa, sem voru svo teknir og látnir gera eitthvað hálfasnalegt. Edrúpakkið+Tóti voru látin drekka einhvern ógeðisdrykk, Guðríður lenti hóp sem átti að setja á svið ævintýraleikrit með Shrek í aðalhlutverki, aðrir voru látnir stunda nútímafimleika með borðum, og tjah... svo kom að hópnum með mér og Brynju. Við vorum upphaflega 5, en þegar á hólminn kom þá vorum orðin 3 (hin beiluðu á meðan við áttum að æfa okkur). Við vorum nefnilega látin dansa við In da Club með 50cent. Ég (sem var orðinn frekar drukkinn) hélt nátúrulega að hinar tvær sem voru með mér myndu fylgja oglét bara allt flakka, ég meina maður leit hvort sem út eins og fífl þannig að það var alveg eins gott að gera bara það besta úr því. En svo kom á daginn að þær stóðu bara fyrir aftan mig og gerðu sama og ekki neitt. En, mér tókst þó samt að heilla áhorfendur þrátt fyrir tvær hreyfihamlaðar hænur á bak við mig og sló einfaldlega í gegn hjá 5.árs stelpunum. Já og ég gleymdi að minnast á það að atriðin sem slík voru boðin upp, þannig að sá (eða það ár) sem bauð hæst eignaðist busana í tilteknu atriði. Atriðin á undan okkur fóru nú ekki fyrir mikinn pening, eða það hæsta fyrir um 1500 kall. En þegar kom að því að bjóða okkur upp heimtuðu 5.árs stelpurnar að fá að bjóða sér í mig fyrir samba taktana mína. Stelpurnar voru seldar á 200 kall, en ég toppaði þær um 2000kr og var því dýrasti uppboðsmunurinn þetta kvöldið. Ég veit ekki alveg hvað Guðríði fannst um allt þetta, að ég væru nú bara kominn í eigu 4 kvenna. Ég veit samt að mér leiddist svosem ekki! :) En eftir þetta húllumhæ var farið niður í bæ, kíkt á Ara (sem mér finnst vera hálfleiðinlegur staður) og litið inn á viðbjóðsstaðinn Pravda. Ég lagði nú samt ekki í það að fara á Hverfisbarinn með Völu og Guðríði þannig að ég fór og fékk mér gúddsjitt Pizzu á Prontó. Á leiðinni þangað hitti maður aðallega fyrsta árs nema í misjöfnu ástandi (meðal annars orra, þar sem hann varla stóð í lappirnar). Ég sem eiginlega féll líka inn í þessa skilgreiningu ákvað svo bara að koma mér heim. Það gekk vandræðalaust fyrir sig, nema hvað að ég sofnaði svo ekki fyrr en klukkan átta um morguninn. Vaknaði svo um tvö leytið og hef sjaldan upplifað eins mikla þynnku eins og þennan dag. Ég gat varla lyft sjónvarpsfjarstýringunni og hvað þá horft á sjónvarpið. Þetta var því hálfgert helvíti. En svo tók bara við lærdómur á sunnudaginn sem maður sá varla fram úr. Er í rauninni núna að slappa af í fyrsta sinn síðan á laugardaginn.

jæja, en nú ætla ég í sund til að geta í alvörunni slappað af....
Adios

   [ posted  @ 20:21 ] [ ]



   föstudagur, september 10, 2004  

Er að fara á nýnemadjamm í kvöld, af því að það er nýnemadagur í dag í Háskólanum. Byrjum á Gauk á stöng í kvöld, þar sem 1. árið ætlar að fá sér bjór og pizzur saman. Svo er bjórinn líka svona helvíti ódýr, ekki nema 290 kall, já og skotið á 350. Förum svo að hitta eldri nemendurna í lögreglusalnum klukkan hálf níu. Kem með frekari update um þetta á morgun

   [ posted  @ 15:03 ] [ ]


 

Sit núna á bókhlöðunni og ætti að vera að læra. Er samt ekki alveg í því moodi akkúrat núna. Var að koma úr verklegri efnafræði og er enn frekar þreyttur. Var líka loksins að læra að tengja fartölvuna inn á þetta háskólanet. Ekki slæmt að geta haft fartölvuna þráðlausa út um allt háskólasvæðið. Hey, Finnur, ég skal senda þér Emil um hvernig þú linkar bloggsíður á síðunni þinni. Í raun lítið mál. Þú færð það einhverntíman um helgina. Verð samt að fara að læra núna...

   [ posted  @ 09:48 ] [ ]



   fimmtudagur, september 09, 2004  

Maður er nú alltaf að verða sjóaðri í þessum internetmálum! Er loksins búinn að læra almennilega á þetta þráðlausa net hérna heima. Nú næ ég smá signali niðri í íbúð hjá mér, og er ég feginn því að þurfa ekki lengur að sitja í stigapallinum heima þegar ég ætla að kíkja inn á netið. Er samt líka að fara að redda málunum þannig, að ég ætla að leggja internet kapal frá efstu hæð, utan á húsinu, sem ég linka með hub, og leiða hann inn um gluggann hjá mér. Þá er loksins hægt að hafa tölvuna þar sem hún á að vera!
Eins og fólk veit, þá er ég byrjaður í háskólanum á lyfjafræðibraut. Þetta er svosem ágætt, en samt á maður erfitt með að venjast því að það sé þúsund sinnum meira að gera en var nokkurntíman í MS. Þetta er samt ok í augnablikinu, því þetta virðist margt bara vera upprifjun frá úr menntaskóla. Sérstaklega þá í eðlis og efnafræði. Okkur er líka sagt að við séum í upprifjun í stærðfræði, en ef að svo er, þá veit ég ekki hvað ég var að gera í menntaskóla; hef aldrei séð þetta á ævinni. Verð svo duglegri við að blogga, þegar þessi helvítis kapall er kominn inn til mín. Það er á dagskránni um helgina...

   [ posted  @ 18:44 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]