JP

 
   sunnudagur, september 24, 2006  

Þá er helgin bara öll, og ég er ekki frá því að ég sé feginn að það sé skóli á morgun.... Var reyndar fín helgi en það er ágætt að það sé komin ný vika og svo hægt sé að hlaða batterýin...

Föstudagurinn var góður, hjálpaði Hlyni í vinnunni og skellti mér svo að hitta Adda í bænum. Addi var nú orðinn frekar góður á því þegar ég hitti á hann um 10 leytið. Hann var að koma úr vísindaferð hjá Landsvirkjun með Jarðfræðinni. En hann var nú ekki verstur. Held að Kiddi eigi nú þann titil. Djöfull var hann erfiður og "góður" á því..... Hann átti nú gott session á Quiznos, þó ég fari ekkert nánar út í það. Addi, þú veist hvað ég er að tala um! :) Skildum hann svo eftir á Rosenberg (veit ekki afhverju hann fór þangað inn, en við nenntum ekki að eltast við hann). Við fórum nú bara á Barinn eins og að vanda. Hittum nóg að góðu fólki, þá m.a. Baldur H. og Björn Halldór (kemur á óvart... eða ekki!), Sunnu og að sjálfsögðu Deluxinn (Mr. Bling-bling) sjálfan. Þetta var nú gott kvöld, en ákvað að enda það frekar snemma, svona vegna þess að það er nóg að gera hjá mér hérna heima í íbúðinni og svo náttúrulega lærdómurinn. Já, maður getur víst ekki gert allt....

Laugardagurinn fór svo í húsgagnakaup og playstation-kvöld hjá okkur strákunum. Höfum ekki gert það síðan.... já, síðan bara í laugalæk held ég. Takk Óli og Addi fyrir hjálpina í IKEA!

Reyndar lenti ég í einu af því óþægilegast "djóki" ævi minnar á Laugardaginn. Gísli, Danni frændi, Biggi Guðjóns og nokkrir fleiri ákváðu að fokka svolítið í mér, svo fari nú ekki nánar út í ástæðuna. Get samt sagt að það fól í sér hótun um íkveikju á íbúðinni og fleira. Var alveg í sjokki eftir símtalið frá þeim. Verð samt að segja að þetta var svolítið dirty og fyrir neðan beltis-stað fannst mér. En Biggi, ef þú lest þetta þá færð þú mikið "props" fyrir að hafa náð gaurnum alveg lygilega vel. Var alveg að kaupa þetta. Ég myrði ykkur samt ef þið "púllið" eitthvað svona aftur....!!!!!

Er samt bara búinn að hafa það rólegt í dag, fara í fótbolta og svona. Hefði kannski getað verið duglegri fyrir framan bækurnar, en svona er þetta bara. Náði nú samt alveg að gera það sem ég ætlaði mér. Svo er það bara að búa sig undir vísindaferð í Lyf og heilsu á föstudag. Get ekki beðið eftir fyrstu vísindaferð vetrarins. Vona að þær verði nú margar þetta árið!

Það var nú engin setning helgarinnar í þetta skiptið, svo ég ætla bara að skrifa um atvik sem ég lenti í í vikunni í verklegu. Ég var í verklegu í Lyfjagerðarfræði á þriðjudaginn með Palla og við vorum að massa einhverjar fleytur og dreifur. Þá labbar kennarinn (sem by-the-way er frekar góður gaur) að mér og spyr: "Heyrðu, er þú ekki alltaf í rokkinu?". Ég var eins og spurningarmerki, en svaraði þó: "Jújú, að sjálfsögðu!". Svo snerust umræðurnar aðeins um það, og svo ekkert meira. Svo í lok tímans segir hann aftur: "Stationwagon, ha!?! Gott band!". Og ég bara: "HA!?!". Hann bara: "Jájá, svona sérstakt nafn, auðvitað tékkar maður á því." Ég spurði bara hvernig í andskotanum hann vissi um bandið. Það er ekki eins og við höfum eitthvað verið að spila á tónleikum. Þá kom í ljós að hann er gaurinn sem rekur og sér um síðuna rokk.is. skemmtileg tilviljun... Svona er Ísland skuggalega lítið land!

Jæja, ætla nú að reyna að fara að sofa svo ég geti hitt Palla klukkan 8 í fyrramálið. Þangað til næst, kveðja JP....

   [ posted  @ 23:37 ] [ ]



   föstudagur, september 22, 2006  

Jájájájájá....... Var að klára að horfa á 16. þátt í 2. seríu af House áðan. Frekar feit sería finnst mér. Held að það sé ekki byrjað að sýna hana hérna. Skil það ekki alveg, það eru komnir a.m.k. 2 þættir úr 3. seríu úti. Skrýtið.....

Annars var helgin nokkuð góð. Reyndar fyrir utan það að bíllinn minn bilaði. Aldrei gaman þegar það gerist. Hann fékk því að vera heima hjá Adda um helgina, og ég þurfti að labba. Stofan er svo gott sem ready, vantar bara nokkur húsgögn inn og svo get ég byrjað á eldhúsinu. Vantar jafnvel eins og einn færna lakkara með mér í það. Spurning hvort Hlynur hafi lítið að gera á næstunni?
Föstudagurinn fór í nýnemakvld Tinktúru (félag lyfjafræðinema). Það var frekar feitt, nema þegar ég komst að því hvað Viktor var virkilega að meina með að skrifa "stjörnustrákur" á skiltið mitt. Viktor, þú ert..... fáv... nei, ok fínn gaur! Laugardagurinn fór svo í að kveðja Omma. Hann átti samt að vera mjög rólegur, en fólk veit hvernig Ommi er. Við skildum við hann á Laugaveginum um klukkan 4 um nóttina, og þá voru 3 tímar í flug hjá honum. Á leiðinn heim/út á völl kom líka víst við hjá Óla á K-kránni til að fá sér meiri bjór! Skil ekki hvernig hann gat náð þessu flugi. Ommi, ef þú lest þetta, ertu viss um að þú sért í Barcelona, en ekki bara enhverstaðar týndur!?! Kæmi mér allavegana ekkert á óvart....

Skólinn er núna að fara af stað hjá mér loksins. Var niðri í Haga í dag til klukkan 6 að læra. Fannst eins og ég væri farinn að byrja í prófum. Sérstaklega af því að við skiluðum inn tillögu að próftöflu fyrir okkur um jólin. Djöfull er tíminn víst fljótur að líða.... Áður en ég veit af, að þá er ég útskrifaður! Væri ég til í það!!!! Ha!?!

Ætla nú samt að reyna að ná einhverjum svefni í nótt, svona til tilbreytingar. Hvernig væri það?
Ætla því að klikka út á setningu helgarinnar. Hún krefst samt smá útskýringar. Gæti vel verið að fólki finnist þetta ekkert svo fyndið, en þá má láta á það reyna. Kannski var þetta bara svona "had to be there" moment....

Allavegana, þá sótti Óli mig og Adda á laugardaginn á leiðinni heim úr vinnunni. Addi heyrir víst í einni "vinkonu" sinni sem hann er búinn að þekkja í stuttan tíma. Hann ákveður að heyra í henni á leiðinni heim, svona af því bara (ég veit reyndar ekki afhverju í andsk....). Allavegana, þá er samtalið svona frekar skrýtið, því Addi vekur hana og er eins og hann er (þið sem þekkið hann vitið hvernig). Hann talar við hana í smátíma og áttar sig svo á því að hún er hálfsofandi í símanum (I wonder why...). Hann kveður hana þess vegna og endar símtalið á þessum undarlegu orðum, án þess að átta sig á því: "Bið að heilsa mömmu þinni!"

Ég og Óli horfðum og hvorn annan og vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið. Við hlógum svo mikið að ég var farinn að skila út nokkrum lítrum af vatni úr augunum. Þegar Addi fattaði hvað hann hafði gert kom smá kjánahrollur, og svo bara hlátur í uþb 10 mín. Já, það vantar hér til útskýringar að hann hefur aldrei hitt mömmu hennar (kannski sem betur fer). Allavegana, þá hafið þið það. Gæti hafa verið frekar tilgangslaust að skrifa þetta, en þetta stendur víst eftir í hausnum mínum sem setning helgarinnar....

Þangað til næst, og þá fljótlega (ég lofa)....... JP

   [ posted  @ 00:22 ] [ ]



   fimmtudagur, september 14, 2006  

Ég tók eftir því að það var komin vika síðan ég skrifaði síðast. Það gengur náttúrulega ekki...... Fer að verða jafnslappur og Addi!!! nei nei segi nú svona..... Sit bara hérna á borðinu mínu niðri í skóla og þykist vera að læra. Ekki einn um það svosem. Palli er líka að þykjast gera eitthvað merkilegt í tölvunni, en það sést alveg í gegnum hann.... Er víst bara að skoða mbl sýnist mér.....

Ætla svo að kíkja Rösquiz í kvöld á Stúdentakjallaranum. Þeir sem ekki vita hvað Rözquiz (Pöbbquiz) er þá er það spurningakeppni milli allra á staðnum þar sem þú skrifar niður svörin á blað og skilar svo inn. Það versta er að það þurfa að vera 2 og 2 saman. Mig vantar eiginlega félaga svo ef einhver hefur áhuga.... bara, call me! Og já.... það er bjór í verðlaun! Þetta ætti að kveikja í einhverjum......

Fékk illt auga frá Steina reiða í morgun í Eðlislyfjafræði. Sofnaði víst í tíma (já... það er víst farið að gerast oftar núna....) og var með kaffibolla á borðinu mínu (þeas.... borðplötunni sem er föst við stólinn) einhvernvegin tókst mér að hella því niður, sofandi, án þess að brjóta bollann! Það er þó hæfileiki útaf fyrir sig.... En svipurinn sem ég fékk var mjög spes.... Hann gæti hafa sagt: "Ertu fullur!?!" eða "Nemendur sem sulla kaffi í mínum tímum falla hjá mér!". En hey, drullaði mér bara út og þurrkaði það mesta eftir tímann..... Það vill sko enginn lenda í Steina reiða! Fólk ætti að spurja Mása eða Árna....

Jæja, ætla að skutla Palla "farþega" heim í rigningunni og fara svo að mála stofuna..... Þangað til næst.... JP

   [ posted  @ 15:50 ] [ ]



   fimmtudagur, september 07, 2006  

Fór á tónleika með Smára og Kára í gærkvöldi. Saman skipa þeir Rómantíska Ástardúettinn. Verð að segja að rómantíkin lá í loftinu og þessir léttu og ljúfu tónar svifu um loftið. Ég og Andri ákváðum að skella okkur á þetta því að þetta gætu hafa verið síðustu tónleikar þeirra pilta í langan tíma. Ég held svei mér þá að ég sé meira að segja kominn með Tupperware-lagið á heilann....

Svo komst Skalli áfram í Rockstar í gær. Jæja.... þá fær hann víst það sem hann vildi. Hann kemst í lokaþáttinn og verður pottþétt ekki söngvari hjá þessum gaurum. Mér fannst Páll Óskar komast vel að orði þegar hann kallaði þá " has been's". Þeir eru ekkert annað en það.... Ég spái líftíma þessarar Supernova-hljómsveitar vera svona uþb 6 mánuðir. Ætli það sé ekki bara ágætt. Það sem maður hefur þegar heyrt frá þeim er frekar hörmulegt....

Búinn að vera að læra í allan dag. Ekki skemmtilegt það. Frásog lyfja og dreifing er kannski ekki alveg ideal hugmynd um góða sekmmtun. Maður verður víst samt að sýna smá lit og byrja snemma á þessu í ár. Annars fer þetta bara illa og stressið tekur völdin allan desember mánuð. Nenni ekki að standa í því þetta árið...

Já... og svo tók ég þátt í VISA-bikarmóti í fótbolta á vegum HÍ í gær. Töpuðum okkar leik 4-3, en hefðu alveg eins getað unnið þetta. Kenni eingöngu úthaldinu um þetta. Aðeins einn maður liðsins fékk sér Rip-fuel fyrir leik og það mætti segja að hann hafi verið eini maðurinn sem eitthvað gat hlaupið í þessum leik (allavega lengur en þessar 5 mínútur sem við hinir entumst!). Þetta kemur samt allt þegar sunnudagsboltinn fer á skrið. Þá kemur samhæfingin og úthaldið aftur. Get ekki beðið eftir næsta sunnudegi. Þá ætlar minn sko að vera í sigurliðinu, engin spurning....

Hvet svo alla sem vilja að koma og fá sér bjór með mér í hádeginu á morgun fyrir framan aðalbyggingu HÍ. Veit að Addi ætlar að joina mér í þessu.... endilega fleiri að koma og slá þessu upp í kæruleysi með okkur....

   [ posted  @ 17:25 ] [ ]



   mánudagur, september 04, 2006  

Var núna að ljúka við minn fyrsta heimaeldaða kvöldmat. Já, núna er þetta að skella á. Er búinn að loka á milli hæða og er því officially fluttur hingað niður. Þarf samt að æfa mig aðeins í eldamennskunni. Maður lifir víst ekki bara á spældum eggjum einum saman. Íbúðin er öll að koma til, þarf samt að fara í IKEA í vikunni og klára að kaupa inn stofuhúsgögnin. Býst við að ég klári allt þetta vesen með íbúðina í lok september. Maður þarf víst að gefa sér tíma í þetta. Eitthvað þarf maður sinna skólanum líka....

Þráðlausa netið er komið upp (núna rétt áðan) svo það gefur manni loksins þetta tölvufrelsi sem maður hefur beðið eftir. Var líka minna mál að setja þetta upp heldur en ég bjóst við. Tók ekki nema 15 mínútur. Kannski að maður sé bara orðinn svona sjóaður í tækjum eftir að hafa umgengist Hlyn og Óla svona mikið!?!

Get samt ekki sagt að ég eigi eftir að læra mikið næstu vikurnar. Fór í bóksöluna með Palla áðan til að klára bókakaupin. Þá kom í ljós að mig vantar 3 bækur sem voru víst búnar þarna í búðinni. Þarf víst að panta þær og það tekur heilar 3 vikur. Það verður sem sagt lítið gert í þeim greinum núna til að byrja með. Ekki það að ég sé eitthvað að kvarta yfir því! :) Palli bauð mér svo í kaffi til hans og Hildar í nýju íbúðinni. Helvíti fínt pleis þarna á stúdentagörðunum. Væri feitt til í að búa þarna ef það kostaði ekki neitt. Finnst nefnilega ágætt að vera hérna fyrst það kostar mig ekki neitt!

Vill ítreka það að það eru allir alltaf velkomnir í heimsókn hvenær sem þeir vilja. Þarf bara að fara að setja upp dyrabjöllu svo ég heyri í gestunum.... Jæja, ætla núna að fara að ganga frá eftir matinn. Á núna pottþétt eftir að skrifa reglulegra núna fyrst það er allt orðið þráðlaust hérna! Þá nennir maður meira að hanga í tölvunni.....

   [ posted  @ 20:01 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]