JP

 
   miðvikudagur, ágúst 30, 2006  

Feitt... Var að horfa á Magna áðan í Rockstar og fannst hann svosem komast ágætlega frá þessu. Ætli hann nái að tolla inni í þessu einn þátt í viðbót??? Kemur víst allt í ljós...

Hef samt alltaf velt einu fyrir mér. Ok... myndböndin af frammistöðum keppenda koma alltaf inn á youtube.com stuttu eftir þáttinn svo að fólk sem missi af þessu geti séð þetta þar. Og kannski er einhver gaur frekar ánægður með magna og langar að leita að honum þar. Hann slær inn leitarorðið "Magni rockstar". Þá fær hann það sem hann er að leita að + eitthvað drasl sem hann hefur gert hérna heima. Hann tékkar á því og hvað ætli gerist.....???? Ætli fólk hætti að fíla hann þegar það sér myndbönd eins og "Flottur kall, Sæmi rokk" eða "Keyrðu mig heim, ég er fullur". Það myndi allavegana hvarfla að mér....

Helgin var annars mjög fín. Fór á föstudaginn með Adda á Stúdentakjallarann til að sjá Reykjavík! og Sprengjuhöllina. Það voru skítsæmilegir tónleikar, nema að Höllin þótti mér svolítið slöpp. Það spilaði kannski inn í að Goggi, Bergur Ebbi og jafnvel Atli voru orðnir svolítið mikið fullir. Snorri RÍO-sonur komst þó vel frá sínu. Hef séð þessa stráka betri, en hey þetta er hörkuband svo þeim er fyrirgefið.

Laugardagurinn var líka ágætur. Var boðið í tvö afmæli, sem ég átti þó erfitt með að mæta í, því Baldur, einn af mínum æskuvinum var að halda innflutningspartý í íbúð sem ég hjálpaði til við að standsetja. Gat ekki látið mig vanta þar... bærinn var samt slappur, og enduðum við bara á að vera á laugaveginum. Alltaf samt gaman að hitta fólk þar. Það bregst ekki að maður rekist alltaf á einhvern sem maður þekkir. Á leiðinni í labbið heim hitti ég svo á Baldur, aka. Da amazin' B-Man. Bið hann afsökunar á því að hafa ruglað þessu nafni einhvernvegin yfir á Bigga. Hér eftir verið Baldur einungis nefndur Da amazin' B-Man, eða bara B-Man sem stytting. Það vita hvort sem er allir að hann er amazin'! Allavegna nefndi Baldur dagsetningu á veiðiferð sem mér fannst frekar feitt. Hún er víst plönuð núna um næstu helgi. Spurning hvort það gangi eftir.... vona það allavegana.

Jæja, ætla núna að fara og kjósa hann Skalla og klikka því út á setningu helgarinnar. Þær eru reyndar tvær að þessu sinni....

Hvernig ertu í bjúganu??? - Stelpan í rauðu buxunum á Laugaveginum

Það er greinilegt að Gunni hefur losað eina krútt-bombu! - Bassi um það þegar Gunni stakk okkur af á leiðinni heim

   [ posted  @ 02:09 ] [ ]



   föstudagur, ágúst 25, 2006  

Núna eru bara 2 tímar þangað til ég hætti að vinna! Svo tekur skólinn við nákvæmlega eftir viku. Maður þarf nú að fara að versla þessar bækur fyrir veturinn. Úff...... 30 þús. kall!!! Líst ekki alveg nógu vel á það. Sjáum hvað maður kemst upp með að sleppa að kaupa...

Kvöddum Finn í gær á Hressó. Það mætti alveg slatti af fólki til að kveðja risann og fá sér smá bjór. Ég verð nú bara að segja að ég á eftir að sakna kappans.... Ég meina, hver á annar eftir að taka með mér úber-hressleikamyndir niðri í bæ eins og þessa... Það eins gott að hann verði duglegur að blogga og myspace-ast! Hann fer í flug um 5 leytið í dag, þannig að ef þið náðuð ekki að kveðja manninn, þá mæli ég með að þið hendið á hann eins og einu smsi. Það má með sanni segja að á eftir verði þessi maður "Snake" on a plane!

Svo er stefnan tekin á tónleika í kvöld. Ætla að kíkja á Nasa og sjá Diktu og Wulfgang, en ætla samt líka að reyna að skjótast yfir á kjallarann og kíkja á Sprengjuhöllina. Þar er á ferðinni sveit sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara! Tjekkit....

   [ posted  @ 13:40 ] [ ]



   þriðjudagur, ágúst 22, 2006  

Hellú...... Núna er menningarnótt afstaðin og líka helvítis prófið sem ég þurfti að taka. Búinn að lofa sjálfum mér því að taka aldrei aftur sumarpróf....

Menningarnóttin var fín. Það var svona mini-partý heima (þá meina ég uþb hálfur fermetri á mann) og svo labbað niður í bæ. Bærinn var fínn, svona seinni partinn, eða eftir að við enduðum á kofanum. Það var einfaldlega bara vond stemmning allsstaðar annarsstaðar. Hitti nokkra fyrrverandi bekkjarbræður mína úr MS + nokkrar bekkjarsystur og var dansgólfið rafmagnað að vanda. Púllaði reyndar suddagaurinn á þetta í smástund og skellti mér á wifebeaternum á dansgólfið. Var reyndar fljótur að skella mér í skyrtuna aftur eftir að Magga litaði bolinn allt í einu rauðann. Held hún hafi óvart skvett einhverjum rauðum drykk á mig, en þetta leit út alveg eins og ég hefði verið að kreista 2 melónur á bringuna á mér!

Labbaði svo undir morgun heim með Gunna og Ragga. Það undarlega við það er að Raggi býr í Kópavogi, rétt við Smárann. Samt labbar hann víst oft heim!?! Sjitt hvað ég myndi ekki meika það að eyða rúmum klukkutíma í að labba þangað...

Annars er maður að fara að stunda boltann aðeins aftur. Er búinn að lofa Andra að kíkja með þeim í bolta einu sinni í viku í vetur. Held að það geri mér bara gott, nema kannski hnjánum og ökklunum. Þarf að kaupa nýjar hlífar á þetta allt saman ef ég ætla eitthvað að labba milli æfinga....

Er núna að telja niður klukkutímana þangað til ég hætti að vinna. Þetta er seinasta vinnuvikan mín áður en skólinn byrjar. Veit ekki alveg hvort ég nenni að vinna með skóla í vetur. Spurning samt hvort maður þurfi þess ekki...

Er núna síðustu vikur búinn að vera að velta fyrir mér að skella mér til Vínar í október. Fékk boð um það fyrir nokkrum vikum og ákvað mig í gær. Það er ekki eins og ég hafi eitthvað betra að gera.... Auðvitað skellir maður sér... Veit einhver um eitthvað feitt að gera þar?

   [ posted  @ 13:45 ] [ ]



   mánudagur, ágúst 14, 2006  

Í dag gerði ég eitthvað sem ég hef ekki gert lengi. Ég lærði!!!! Sat á bókhlöðunni í allan dag og las lífeðlisfræði. Frábært........

Helgin var fín en kannski nokkuð róleg miðað við þær sem á undan hafa gengið. Fékk mér þó samt bjór á laugardaginn og kíkti stutt á Barinn. Það var lítið af fólki, en við hittum þó Unni Aldísi og Kötu. Sjaldan rekist á svona fáa þarna inni. Var farinn að halda að Árbæjarstelpurnar væru orðnar fastagestir en eitthvað hefur greinilega klikkað hjá þeima þarna á laugardaginn. Fór samt bara þegar Gunni bauð mér far heim. Betra að geyma þetta fyrir næstu helgi.

Eitthvað hefur það verið í umræðunni að labba Esjuna næsta sunnudag. "Heilsan" ætti ekki að setja strik í reikningin þar, því enda heitum við Gönguklúbburinn Afréttari! Allir þeir sem lesa þetta hérna og hafa áhuga að koma með "alvöru karlmönnum" á Esjuna, endlega látið þið vita. Býst við að þetta verði nokkurnvegin sami hópur og seinast. Væri samt fínt að draga einhverja fleiri með. Ekkert samt pottþétt að það verði farið, er bara svona að reyna að sparka í rassgatið á letihaugunum í kringum mig. Geri þó ráð fyrir að Mottan sé klár í þetta.

Er núna kominn með nýtt áhugamál. Ótrúlegt en satt, þá er það ljósmyndun. Hefði aldrei búist við að ég myndi einhverntíman segja þetta. Er svona að koma mér af stað í þessu og veit voða lítið, en er þó búinn að verða mér úti um vél og einhverjar bækur. Það er "kubbur" frá um 197?. Hefur samt víst einhverja fítusa á sér.Ekki alveg með ártalið á hreinu. Ef einhver hefur einhverja visku um þetta áhugamál, þá má hann endilega hafa samband...

Svona í lokin ætla ég að henda inn einni góðri mynd af Árna elephant og Bjarma í góðu stuði á Barnum.....

   [ posted  @ 22:21 ] [ ]



   föstudagur, ágúst 11, 2006  

Er núna að telja niður sekúndurnar þangað til að vinnan klárist. Ekki að það taki við einhver afslöppun, því maður þarf víst að læra í viku í viðbót, heldur er maður bara feginn að brjóta aðeins upp á rútínuna. Fínt held ég að lesa í viku og vera á launum við það. Já, þið heyrðuð rétt. Ég fæ víst eitthvað af þessum dögum borgað. Ætla reyndar að mæta svo aftur í vinnuna á mánudaginn 21. ágúst og vinna þá vikuna. Segi ekki nei við auka pening, sérstaklega þegar skatturinn er farinn að heimta sitt!

Er búinn að komast að því að ég er forfallinn myspace fíkill. Maður surfar þar um, tékkar á fólki sem maður þekkir, kannast við eða þekkir ekki neitt. Er maður að breytast í einhvern gaur, sem maður hló að fyrir nokkrum árum. Þessi tölvu notkun er náttúrulega ekki sane! Eina sem ég geri í vinnunni er að vera í tölvunni. Öll mín vinna er gerð á tölvu, pásurnar mínar (stundum langar) eru í tölvunni og tjahh.... svo kíkir maður aðeins í hana heima. Held ég lesi mbl.is næstum 5x á dag. Þetta hættir samt betur fer þegar skólinn byrjar...... eða hvað?

Lögheimili mitt verður á bókhlöðunni í næstu viku. Hún er reyndar bara opinn til 5 ádaginn, en þá hefur kannski gott af smá pásu áður en maður heldur áfram. Ætla nefnilega að rústa þessu prófi!!!! Öll símtöl til mín geta því væntanlega farið í gegnum skiptiborð Þjóðarbókhlöðunnar.

En á öðrum nótum.... Hvað er málið með öryggisgæslu á flugvöllum í dag!?! Er fólk að ganga af göflunum? Held að þetta sé nú að færast svolítið út í öfgar. Ef maður spáir í því, þá eru meiri líkur á því að einhver kreisí ökumaður (hryðjuverkamaður?) á Sæbrautinni keyri inn í hliðina á þér, kasti bílnum út í sjó svo að maður drepist, heldur en að hryðjuverkamaður sprengi flugvél sem þú ert í! Bara pæling.....

   [ posted  @ 14:51 ] [ ]



   miðvikudagur, ágúst 09, 2006  

Fór í klippingu hjá Toni&Guy í gær. Það var illa feitt. Var að fara þarna í fyrsta skipti, og vissi ekki alveg hvað maður ætti vona á. Fínt að fá kaffi og svoleiðis á meðan maður stílistaður til andskotans. Lét einmitt klippa mig stutt, en skilja eftir toppinn. Er nefnilega að spá í að safna í ágætis "asnatopp". Ræni þessu orði frá Bigga. Hann vill meina að fíflin í öllum amerískum háskólamyndum séu alltaf með síðan topp..... Ætla allavegana ekki að mótmæla þessu. Ég ætla sem sagt að vera fífl í smá tíma. Þarf samt að fá að vaxa aðeins.

Hvað er samt málið með hárþvott á hárgreiðslustofum. Er alls ekki á móti þessu. Þetta var massa þægilegt. Fyrst með sjampói, svo djúpnæring (sem ég by-the-way nota ALDREI) og eitthvað sjedd sem átti að mýkja hársvörðinn. Allavegana..... Þetta var, eins og maðurinn myndi segja, algjört fab.... Vil alltaf fá svona þegar ég fer í klippingu.

   [ posted  @ 14:48 ] [ ]



   þriðjudagur, ágúst 08, 2006  

Nú er verslunarmannahelgin að baki. Úffff.... þetta er búin að vera massívt góð helgi og kallar á langa færslu. Held að ég hafi varla búið heima hjá mér þessa daga. Var meira og minna hjá Adda allan tímann.

Föstudagurinn fór í blöndun og vínsmökkun. Átti að vera rólegt, en endaði í bænum (eins og vanalega). Þar hittum við Árbæjarstelpurnar í gríðarlegu dansfári sem enginn hafði roð í að toppa (nema kannski stelpan sem reyndi að nauðga Finn á dansgólfi Barsins). Allt átti þetta samt að vera upphitun fyrir afmælispartýið sem átti að halda kvöldið eftir....

Laugardagurinn fór í að fá okkur morgunmat á Red Chili. Átti alltaf að vera á KFC (lesist Kaffsé) en hálfvitarnir þar virtust vilja hafa það lokað. Misstu af miklum viðskiptum þar, enda svangir menn á ferð. Svo lá leiðin hjá mér, Adda og Gunna í fjölskyldugarðinn. Til að fyrirbyggja allan misskilning, þá vinnur Magga hans Gunna þar og vorum við að ná í bílinn hjá henni (hver treystir mönnum eins og okkur í því ástandi sem við vorum fyrir bíl???). Eyddum samt örugglega klukkutíma í garðinum og fórum í vísindatjaldið, þar sem Addi uppgötvaði að hann væri alveg eins og dvergurinn í Jackass. Addi, ég ætla að stela þessum spegli fyrir þig, já og fiskinum líka!!! Kvöldið byrjaði líka vel. Addi höfðingi splæsti í áfengi sem kláraðist næstum alveg um kvöldið. Við erum að tala um 3 kassa af bjór, bollu, eitthvað af Tequila og eitthvað af tópas. Fólk mætti líka eitthvað með sitt svo það má segja Addi hafi grætt ágætis dósapening á þessu öllu saman. Samræður kvöldsins eiga klárlega Gunni (a.k.a. Mottan) og Tobba. Þau eru bæði jafnerfið, og ætluðu hvorugt að gefa sig. Það eru fáir sem eiga roð í "erfiða" gaurinn, og því varð Tobba að játa sig sigraða. Verð samt að viðurkenna að ég hætti að fylgjast með samræðunum eftir uþb hálftíma (ekki úthald til að hlusta á svonalagað lengi). Auðvitað var farið í bæinn, og viti menn, hverja ætli við höfum hitt!?! Gæti það verið ákveðnir MS-ingar úr Árbænum (mínus þeir sem fóru til Eyja). Það var magnað kvöld, enda leit ég út fyrir að vera að koma af einhverju reifi! Var í svörtum hlýrabol allt kvöldið. Ég meina hey, það verður fáránlega heitt á þessum stöðum, sérstaklega þegar JP rokkar dansgólfið! Kvöldið endaði svo þegar Finnur "lét týna sér" og ég, Robbi og Beta fórum í leigubílaröðina.

Sunnudagurinn var líka góður. Lærði aðeins, horfði á sjónvarpið og endaði svo á að ætlað elda kvölmat hjá Adda. En þeir sem þekkja okkur strákana mjög vel vita að við getum stundu mverið óákveðnir og húðlatir, þannig að við fórum út að borða á Red Chili (aftur). Getið þið séð fyrir ykkur Omma, Gumma og Adda sitja saman í afursæti á Nissan Micru??? Það var það sem gerðist, og enda átti "strúturinn" (Micran) hans Finns í fullu fangi með okkur alla. Bíllinn var orðinn ekta "lowrider" með þessari þyngd! Kvöldið fór svo í að klára afgangana hjá Adda og fara svo aftur niður í bæ. Og já, hverja ætli hittum??? Já, það er rétt. Möggu og Hrönn ásamt Fúsa og "the sextoy" (Kári). Fórum á vegamót og ellefuna. Er búinn að ákveða að geyma söguna af vegamótum, því hún er efni í aðra færslu. Skulum bara segja að hún muni innihalda Selfyssing með stelpufóbíu. Þetta kvöld var dansað mikið og mikið hlegið af "trailertrash" stelpunum á sem dönsuðu á sviðinu á ellefunni! Myndir verða því miður að koma seinna. Er nefnilega með nálægt 200 myndum sem teknar voru um helgina, og á eftir að uploada. En þetta var með sanni sagt massa kvöld!

Mánudagurinn var aðeins rólegri. Fórum þó og gegnum á Esjuna nokkrir saman. Býst við að við fáum nafnið "Gönguklúbburinn Afréttari". Meðlimir núna eru: Ég, Addi, Andri, Gunni, Mottan og Ommi. Klúbburinn fer samt stækkandi. Ferðin gekk mjög vel fyrir sig og vorum við um 3 tíma upp og niður (já við erum allir í engu formi..... og slappir eftir helgina!). Hér er einmitt mynd af okkur á toppnum (stolin í óleyfi af gunni.net) . Svo er stefnan næsta sumar tekin á að labba laugaveginn, án djóks. 52 kílómetrar, 3 dagar af göngu og intensívt álag. Þetta er eitthvað sem Afréttarinn fer létt með. Er samt orðið heldur seint að gera þetta núna. En ætlum allavegana aftur á esjuna fyrir skólann til að bæta tímann, það er bókað mál.
Ætli ég fari nú ekki að segja þessari færlsu lokið, enda er hún í lengri kantinum. Nennir örugglega enginn að lesa eitthvað svona langt.
JP kveður í bili og órtúlegt en satt er hann ekki með harðsperrur eftir gærdaginn. Tower zinger í mosó hefur reddað því....

   [ posted  @ 07:52 ] [ ]



   fimmtudagur, ágúst 03, 2006  

Þá er tölvan loksins komin úr viðgerð! Og komin með nýjan og stærri "heila". Hinn brann víst yfirum. Fagna þessu þó, því núna get ég bombað ennþá meiri tónlist inn á tölvuna án þess að hafa áhyggjur af því að fylla hana. Sweet... eins og tvífari minn hann Napoleon Dynamite sagði!

Fór ekki í vinnuna í dag. Var eitthvað slappur í morgun og meikaði ekki alveg að drulla mér. Ætla frekar að nota daginn í að læra. Sýna smá metnað. Er ekki nema 2 vikur í þetta hjá mér! Sjitt, fékk hroll þegar ég skrifaði þetta. Reddast samt alltaf........ vona ég.......

Helgin verður massív! Föstudagurinn fer í vinnu og undirbúning fyrir laugardaginn. Maður þarf að fara í ÁTVR og svoleiðis... Ég og Addi ætlum líka að blanda bollu á laugardaginn, og þurfum því að hafa allt tilbúið í hana. Vona að sem flestir sjá sér fært að mæta, sérstaklega svo þetta endi ekki sem "pulsupartý"! Veit bara að þetta verður eitt besta partý ársins, og þeir sem sleppa því munu fá martraðir sem fylgja þeim í gegnum allt lífið!

Sunnudagurinn er óplanaður. Upp kom sú hugmynd að fara á innipúkann það eina kvöld. Er feitt til í að sjá Mugison. Það voru líka einverjir fleiri að spila þarna, en man bara ekki hverjir það voru (heilinn á mér að verða eins og gamli harðidiskurinn í tölvunni...... útbrunninn).

Mánudagurinn verður svo frekar feitur, eða ætti ég öllu heldur að segja erfiður. Planið er að ganga á Esjuna. Það er spurning hvernig við plummum okkur þar!?!

Og svo hérna fyrir þá sem eru ekki á myspace, eða eru lítið á youtube, þá hendi ég hérna inn stystu útgáfu af Big Lebowski sem ég hef séð. Hún lýsir samt innihaldi og boðskap myndarinnar f***in vel myndi ég halda....

   [ posted  @ 13:40 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]