|
fimmtudagur, júní 29, 2006
Hef verið að gangi í gegnum svoítið síðustu daga og vil þakka þeim sem hafa staðið með mér í því.... Kemur færsla fljótlega....
[
posted
@
18:13
] [
]
föstudagur, júní 23, 2006
Þá er ég bara búinn að panta mér gítar í gegnum netið (vona það allavegana). Ég veit samt aldrei hvort ég get treyst þessu dæmi. Kannski eru þetta bara einhverjir guarar sem eru að reyna að ræna saklasut fólk eins og mig. Það kemur í ljós á næstu 3-5 dögum hvort sendingin skilar sér eða ekki. Vona það besta.
Er annars að fara til Akureyrar á eftir að hitta Palla (a.k.a. Pellö Flandersen). Það á að taka á því á laugardaginn svona sem upphitun fyrir næstu helgi. Þá fer ég í Hallgeirsey, en hann í brúðkaupsveilsu hjá bróður sínum. Þó við séum ekki að fara á sama staðinn, eigum við það sameiginlegt að við ætlum að skála.... og það vel! Foreldrum mínum, sem sjá um aksturinn til Akureyris (eins og Bó Hall sagði forðum), fannst ekki nógu gott að fara á bílnum sem þau áttu, heldur urðu bara að kaupa annan fyrir ferðina. Þetta ekki í fyrsta skipti sem svona lagað gerist.
Fann svo heldur betur fyndna mynd (að mér finnst) á netinu. Hef ekki séð manninn sem stendur með Eiði Smára í langan tíma. Hann ber nokkur nöfn eins og t.d. Jói Rotta og Jói the Man, en mamma hans kallaði hann held ég bara Jóhann. Ég hélt að þessi maður væri í alvörunni búinn að drepa sig í neyslu, en það er ánægjulegt að sjá að hann stendur allavegana í lappirnar.... ennþá..... Bara að sjá þessa mynd vekur upp margar minningar úr Laugarnesskóla. Held að margir geti tekið undir það.
Svo vil ég hvetja alla sem ekki hafa tryggt sér miða fyrir Hallgeirsey að gera það strax, vegna þess að þaran er á ferðinni ein magnaðasta útilega ársins..... Svona nú, drífið ykkur!!!!
[
posted
@
13:34
] [
]
sunnudagur, júní 18, 2006
Einhvern vegin finnst mér eins og 17. júní sé ofmetinn sem slíkur. Jújú, frábært... þetta er þjóðhátíðardagurinn okkar og allt það.... en það er ofmetið að fara niður í bæ og gera já..... gera ekki rassgat. Það er líka venjulegast skítaveður og allar hljómsveitirnar tjahhh..... ætla kannski ekki fara út í það akkúrat núna. En í gær áttí ég mjög feitan 17. júní. Það er ekki oft sem maður getur byrjað daginn á að mæta í góðan hóp, horfa á fótbolta/handbolta/fótbolta, fara í magnað partý þar sem er séð um að maður fari alls ekki svangur út, og enda aftur á sama stað og maður byrjaði einhverntíman um nóttina. Fæðan þennan daginn var pizza, bjór og kökur ala Hrísateigur 35. Eins og ég segi, ljúfur dagur í alla staði. Og það sem toppaði þjóðrembuna algjörlega var það að Ísland komst áfram út úr umspilinu, jafnvel eftir að hafa tapað. Það er ekki oft sem maður er stoltur af tapleik....
Ég vil bara þakka Brynju og Bjarka fyrir mig, þetta var feitt í alla staði! Brynja ég vona að þú getir notað regnhlífana frá mér og Andra......
[
posted
@
16:54
] [
]
föstudagur, júní 16, 2006
Það er naumast hvað sumir dagar geta einfaldlega verið leiðinlegir. Það er þunglyndislegt veður úti og vinnan er svosem ekkert betri. Get ekki beðið eftir að sleppa héðan út í helgarfríið sem bíður manns. Feginn samt að vera ekki iðnaðarmaður í dag (Hlynur ég veit að þú ert sammála mér þó sért að mála--reyndar hefurðu samt Peltorinn minn, hann reddar ýmsu). Örugglega skítleiðinlegt að vera að vinna í þessu veðri. Ég meina, mér leiðist og ég er inni og HEF TÖLVU. Ef að það er leiðinlegt þá veit ég ekki hvað hitt er....
Vil óska öllum þeim til hamingju sem þreyttu inntökuprófið læknisfræði/sjúkraþjálfun. Feginn að ég tók það ekki. Ekki misskilja mig samt. Það er fáránlega gott í lyfjafræðinni, bara langaði til að sjá what the fuzz is about. Maður er ekki alveg dómbær á hversu erfitt (eða létt) þetta er fyrr en maður hefur prófað sjálfur. Heyrði samt að almenni hlutinn hefði verið skull. Fyrir hönd þeirra sem ég þekki og fóru í prófið vona ég að allir hinir fóru hafi drullað gjörsamlega upp á bak, svo þeir sem ég á við eigi greiða inngöngu inn í deildirnar.
Annars er það 17. júní á morgun. Held bara að ég þiggi boð Gunna um að liggja með bjór ALLAN daginn og horfa á fótbolta/handbolta/fótbolta. Svo bara í bæinn um kvöldið ef hressleiki (og veður ef út í það er farið) leyfir...
[
posted
@
14:55
] [
]
fimmtudagur, júní 15, 2006
Þá er kominn tími til að endurlífga þessa síðu. Ætli ég geri ekki útlitsbreytingar á henni á næstunni. Sá að ég hafði ekki skrifað neitt síðan í prófunum, svo það er best að ég segi kannski hvernig gekk með þetta viðtal. Stutt viðtal. Var bara ráðinn á staðnum. Held vegna þess að ég er strákur. Kynjahlutfallið hjá Lyfjastofnun er held ég 8 karlmenn og rúmlega 20 kvenmenn. Heldur mikið að jákvæðri mismunun þar á ferð. nei segi nú bara svona.......
Hef annars verið að velta fyrir mér... Er einhver til í að hefja innflutning með mér á morfíntengdum lyfjum? Hef heyrt að það gefi gott í annan vasann, svona á meðan maður er námsmaður. Einstaklingurinn þarf ekki að vera fær í selja neitt, hann þarf einungis að gefa mér kennitöluna sína, og skrifa "fyrirtækið" okkar algerlega á sig. Áhugasamir endilega hafiði samband. Góð laun í boði. Ef fólk er lengi að hugsa sig um þetta gylliboð þá er því bent á að þetta tilboð fer í smáauglýsingar fréttablaðsins eftir helgi...
[
posted
@
18:45
] [
]
|