|
mánudagur, nóvember 07, 2005
Maður er nú svolítið latur við að skrifa þessa dagana..... Það er bara eiginlega þannig að maður nennir varla neinu lengur. Kannski líka lítið búið að vera gerast svona seinustu vikur. Það er kannski það helsta að ég seldi sál mína djöflinum, og gerðist viðskiptavinur ogvodafone, eftir að hafa verið hjá símanum frá því tjahh.... já frá því í grunnskóla. Þetta var svo sem ekkert ætlunin, heldur var ég "veiddur" í kringlunni og spurt hvort ég vildi prófa að vera hjá vodafone. ég sló bara til því maður græddi fría inneign og svona.... kannski maður bíði bara eftir að síminn bjóði betur og færi sig þá bara aftur yfir.
Jú, annars er það líka að frétta að hljómsveitin sem ég er í hefur verið að taka upp nokkur lög núna síðustu daga. Ennþá er þetta allt í hljóðvinnslu, en styttist í að þetta verði tilbúið. Maður bara getur ekki beðið. Það væri svo fróplegt að vita hvort einhver útvarpsstöð hefði áhuga á þessu......
[
posted
@
16:50
] [
]
|