JP

 
   miðvikudagur, september 28, 2005  

Var bara núna fyrir stuttu að komast að hvað þetta "klukk" væri. Ég hafði aldrei séð þetta áður, ekki fyrr en að Sandra klukkaði mig. Ég verð því koma með einhver 5 atriði um mig sjálfan, sem ég er alveg viss um að allir vita...

1. Ég er tónlistarsjúklingur og gítarfíkill. Downlaod-ið og geisladiskafjöldinn segir eiginlega allt um það. Ef ég væri feitt ríkur myndi ég að öllum líkindum eiga alla þá tónlist sem mig dreymdi um, og enn betra, alla þá rafmagnsgítara sem ég hef nokkurntíma girnst! (ófáir-trúið mér)

2. Ég horfi mjög mikið á sjónvarp, og má þar nefna enska boltann, MTV, VH1 og já það helsta sem fólk horfir á í dag. Er reyndar alls ekki stoltur af því að segja að ég hef held séð alla þá Survivor þætti sem sýndir hafa verið á Íslandi. (sorglegt, ég veit!) Það var bara þannig að þegar í var í 4. bekk í MS þá nennti ég ekki í skólann og horfði því Suvivor maraþonið, og tók restina upp þegar ég neyddist til að fara eitthvað. Þetta er reyndar að breytast, því ég er að breytast í Lost fíkil.

3. Alla mína tíð hef ég verið með tækjaáráttu! Kenni reyndar Óla og Hlyni svolítið um það. Finnst ég alltaf vera að missa af einhverju ef ég á það ekki. Þetta er slæmt mál, því ég þarf venjulegast að hemja mig um það að kaupa það. Það tekst í svona 90% tilvika. Þetta tengist svolítið gítaráráttunni sem ég er búinn að nefna hér á undan. Er samt að reyna að venja mig af þessum leiðinda sið.

4. Verð eiginlega að hafa bjórinn með á þessum lista. Mér finnst nefnilega bjór alveg ógeðslega góður! Stenst stundum ekki mátið að fá mér bjór yfir sjónvarpinu á kvöldin. Það er mjög fínt og kemur mér í svona afslappaðann gír. Það er venjulegast til bjór í ísskápnum hjá mér, og er það venjulegast tékkneskur bjór.

5. Svo er það helvítis gourmet-dótið. Ég er og hef alltaf verið svolítið fyrir að borða óhollan mat. Þetta gekk upp þegar ég var enn að spila fótbolta, og var í fínu formi( hætti eftir 3 bekk í menntaskóla). Eftir það fór vaxtarlagið aðeins að breytast og úthaldið líka. Er núna að vinna í þessu máli, vegna mikilla útgjalda og minnkandi fata, þið skiljið.

Já, þá er þetta frá. Vissi reyndar svo sem ekkert hvað átti að vera á þessum lista, svo þetta var það fyrsta sem kom í hugann. En eins og ég sagði áðan.... þá held ég að þeir sem þekki mig hafi vitað þetta fyrirfram......

   [ posted  @ 13:54 ] [ ]



   föstudagur, september 09, 2005  

Ég stend fast á því að það ætti fleiri skóladagar að vera eins og dagurinn í dag. Í dag var nefnilega stúdentadagurinn. Þegar þann dag ber að garði er boðið upp á ódýran bjór (reyndar frír bjór í fyrra), fríar pulsur og nóg af hljómsveitum. Þetta byrjaði klukkan 2 í dag og stendur held ég enn þegar þetta er skrifað. Stúdentaráð fær hrós fyrir daginn í dag. Það er nefnilega yndislegt að geta fengið sér bjór meðan maður er enn í skólanum, tala nú ekki um ef maður ætti nú eftir að mæta í tíma seinna um daginn.

Svo á morgun virðist allt stefna í það að maðuir skelli sér á Trabant tónleika á Stúdentakjallaranum. Helvíti gott það!

   [ posted  @ 17:11 ] [ ]



   fimmtudagur, september 01, 2005  

Það sem ég hélt að ég myndi aldrei gera er að gerast á laugardaginn. Ég er að fara að spila golf með strákunum. Ekki það að ég kunni eitthvað fyrir mér í þessari íþrótt, þá hef ég þó horft á Happy Gilmore nokkrum sinnum í gegnum ævina og tel mig því geta slegið eitthvað. Það er þó kannski ekki getan sem skiptir máli hérna því ég ætla að mæta með í mesta lagi 2 kylfur (eða bara sníkja að láni hjá hinum) og vera í staðinn með nóg af brewsky. Það hvíslaði því líka lítil fluga að mér að Hlynur ætlaði að vera caddy hjá mér, þannig það myndi bæta stöðuna hjá mér aðeins. Það hljóta nefnilega allir að sjá að:

JP + Hlynur = 2x meiri bjór með í för.

Ekki slæmt það...

   [ posted  @ 20:52 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]