|
sunnudagur, ágúst 28, 2005
Vil byrja á því að þakka því fólki sem ég hitti fyrir gærdaginn. Hann var frekar fínn. Hlynur átti afmæli í gær svo við gerðum okkur glaðan dag (nótt) niðri í bæ.
Skólinn svo að byrja á morgun. Það er ágætt þegar þessar menntastofnanir hrökkva í gang eftir smá svefn á haustin. Fullt af fólki sem maður hittir aftur, eftir að hafa verið í blessunarlegu fríi frá því í 3 mánuði. Alltaf gaman að sjá hverjir hafa drullað upp á bak, koma nýjir inn eða hverjir eru á sínum stað. Ég held að þetta eigi eftir að verða feitur vetur fyrir alla.
Er farinn að halda að það séu bara vip´s og celebs á prikinu. Þetta fæ ég út eftir að hafa eitt nokkrum kvöldum í sumar í röð fyrir utan, og fylgst með amk 40 manns fara á undan mér inn, þó ég sé fremstur í röðinni. Kannski er ég bara svo sveitó að ég veit ekki hverjir eru "inni" í dag, því ég þekkti ekki meirihlutann af þessu liði. Reyndar kom einar með þá góðu tilgátu að maður þyrfti í rauninni ekki að vera jackshit til að komast þarna inn. Maður á víst bara að labba mjög spaðalegur í átt að vip inngangnum og segja: "Hey, við erum 4!". Þetta á víst að virka, því þessir heimsku dyraverðir geta ekki munað eftir öllum þessum fjölda. Þetta er vert að prófa.....
[
posted
@
17:02
] [
]
sunnudagur, ágúst 21, 2005
Hvað er að gerast á Íslandi í dag!?! Tvær stunguárásir í RVK. Einn dáinn og annar á gjörgæslu. Ég næ ekki upp í þetta. Hvað er næst.....
Fréttir laugardaginn 27. ágúst....... Kalla þurfti á lögreglu þegar skotbardagi braust í út meðal ungmenna í breiðholtinu. Nokkrir eru lífshættulega slasaðir og náði lögregla að gera upptæk 12 skotvopn.....
Þetta á eftir að enda einhvernvegin svona. Ísland er bara að verða meira og meir eins og BNA með hverju árinu. Eitthvað þarf að gera í þessum málum
[
posted
@
18:25
] [
]
föstudagur, ágúst 19, 2005
Nú fer skólinn að byrja og vetur að ganga í garð. Þá er maður mættur hingað að skrifa aftur. Er að vinna í því að hægt sé að nálgast skýrslur úr lyfjafræðinni hér á síðunni svo 1. árs nemar þurfi að gera sem minnst sjálfir þegar kemur að því verklega.
Sumarið heur verið fínt og margt drifið á daga mína. Átti meðal annars að vera í myndinni Flagg feðranna, en hætti við sökum allra þessara leiðindamála sem komu upp. Fékk samt fría klippingu. Las líka um það í fréttablaðinu að einhver aumingjans statistinn hafi orðið sjóveikur og ælt akkúrat þegar myndavélinni var beint að honum. Hahaha... Það á svo víst að nota það í myndinni, þótt gaurinn hafi beðið um að þetta yrði ekki notað. Flott það að fá að æla í Hollywood mynd...
Er að velta fyrir mér að endurbæta þessa síðu ef tími gefst til.... en tjahh.... fyrst þarf maður nú að koma sér í gang til þess að skrifa......?
[
posted
@
20:07
] [
]
|