|
föstudagur, maí 20, 2005
Komin heim til íslands og er búinn með aurana. Byrjaði að vinna í dag, svo að nú fara kannski peningarnir að streyma inn. Er líka búinn að fá það staðfest að ég hef náð 2 af þeim 4 prófum sem ég fór í. Góðir tímar framundan...
[
posted
@
19:24
] [
]
föstudagur, maí 13, 2005
Ég er búinn í prófum..... ég er búinn í prófum!!!!!!!!!!!! Þetta er æðisleg tilfinning. Er svo á leiðinni í bústað með fólkinu á 1. ári á eftir, einhversstaðar hjá Selfossi, og fer svo til Köben á sunnudaginn. Djöfulli er ljúft að lifa núna..... allavegana þangað til að einkunnirnar koma. Er held ég tæpur í efnagreiningunni, en allt hitt ætti að hafa blessast ágætlega. Svo fer maður að vinna eftir slétta viku, og þá fara sko peningarnir að streyma inn. Þetta hefur verið hálfgert eymdarlíf síðustu vikur, því orlofið var ekki komið, og því buddan heldur létt. En já, nú get ég í fyrsta skipti í langan tíma lagt mig að degi til. Maður verður að gera það til að spara orkuna fyrir kvöldið.... Adios
[
posted
@
14:28
] [
]
|