JP

 
   sunnudagur, apríl 17, 2005  

Var að koma af hlómsveitaræfingu með hinni frábæru hljómsveit Stationwagon. Það er í rauninni það eina sem heldur mér gangandi í þessum stanslausa lestri. Maður bíður bara spenntur eftir næsta sunnudegi til að geta spilað meira. Svo sem betur fer verða æfingar oftar þegar prófin eru búin.
Annars ætlaði ég nú bara að láta vita að síðan sé ekki óvirk, ég er ekki hættur að blogga.... bara í smá prófapásu. Ég má ekki við því að fara í tölvuna á meðan ég er að lesa, því þá festist ég þar. Ég er búinn í prófum þann 13 maí, en býst nú samt við að einn og einn pistill rati hérna inn þegar mér hentar. Ég vil líka benda á síðuna hjá okkur félögunum úr laugarneshverfinu, en þið komist inn á hana hér. Kannski að eitthvað rati líka þangað inn frá mér. Það er aldrei að vita....

   [ posted  @ 23:59 ] [ ]



   fimmtudagur, apríl 07, 2005  

Ég var að skrá mig í áframhaldandi háskólanám áðan, þ.e.a.s. ef ég næ öllu núna. Aðeins eitt ár búið, og 4 löng eftir. Maður er varla að nenna að bíða eftir þessu. Er líka að verða búinn með allt það verklega sem ég þarf að taka, svo að skóladagurinn er alltaf að styttast hjá mér. Það versta er að núna fara prófin að byrja, en í þessum mánuði er bara svo margt annað sem ég þarf að gera líka.
Sjáum nú til...
Það er vísindaferð í MasterCard á morgun
Það er afmæli hjá Óla á laugardaginn
Það er afmæli hjá Sólveigu um hina helgina

Þetta er aðeins brot af því sem er að gerast, svo ég bara spyr.... "Hvernig er hægt að ætlast til að maður hafi einhvern tíma til að læra?" Af hverju getur þetta ekki bara verið þannig að maður þurfi bara að mæta í tíma til að ná, og að nördarnir einir geti farið í próf, bara til hækka sig úr "náð" í eitthvað betra. Ég væri allavegana til í eitthvað svoleiðis...

   [ posted  @ 20:52 ] [ ]



   sunnudagur, apríl 03, 2005  

Nú er bara besti mánuður ársins genginn í garð. Þetta segi ég vegna þess að á morgun, 4. apríl, verð ég 21 árs! Reyndar er ég nú samt ekki alveg sáttur við að vera kominn á þrítugsaldurinn, en hey... hvað getur svo sem gert. Maður er bara að verða það gamall, að það fer að styttast í botox, strekkingar og svoleiðis, nei segi nú bara svona...
Fór samt að pæla í þessu með aldurinn. Ég meina, að þegar maður var 17 ára, þá gat maður ekki beðið eftir að verða 18 ára, því þá varð maður sjálfráða. Og svo þegar maður varð 19 ára, þá var maður einu skrefi nær í að verða löglegur allstaðar, eins og inni á skemmtistöðun og ríkinu og svoleiðis. En þegar maður varð svo loksins tvítugur, þá hafði maður náð þessu öllu saman, sem er svosem frábært að því leytinu til. En svo heldur maður áfram að eldast, hvað þá!?! Ekkert til að hlakka til, nema kannski 1 ári nær að verða búinn í skóla (sem er svosem ekkert til að fagna held ég). Þetta er algjört skull. Mig langar ekkert að verða gamall...

Vil nota tækifærið núna, og óska Bassa til hamingju með fenginn, og biðja fólk að muna eftir Óla þann 6. apríl...

   [ posted  @ 15:43 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]