|
laugardagur, janúar 29, 2005
Fór í vísindaferð í orkuveituna í gær. Það var ágætt, þó manni fyndist við ekki vera velkomin þarna. Konan sem stóð fyrir kynningunni notaði hvert tóm sem henni gafst til að skjóta á okkur. ,, Haldið að þið sem lyfjafræðingar getið einhverntíman unnið hjá orkuveitunni?" og ,, Hvað eruð þið eiginlega að gera hérna?" voru setningar sem hún lét fljúga í okkar garð. Okkur var svosem alveg saman og kláruðu þess í stað bjórinn sem var þar í boði, ásamt öllum veitingum öðrum. Fínasti veislumatur í boði þarna.
En hvað er málið með þetta handboltalandslið okkar!?! Alltaf eru blásnar upp einhverjar væntingar í fjölmiðlum um góða frammistöðu og svoleiðis. Svo eru alltaf allir hissa þegar við komust ekki einu sinni milliriðlana. Ef við værum ekki með þessar endalausu kröfur og væntingar, þá væri þetta ekkert óeðlilegt. Það hefur bara sýnt sig að við erum ekkert betri en þetta, og eigum langt í land með að verða það. Við mundum líka örugglega standa okkur betur ef þessi gífurlega pressa yrði ekki sett á leikmennina. Íslendingar verða bara að skilja það, að við erum lítið þjóð, með þannig séð lítið úrval af leikmönnum, og þess vegna verður þetta alltaf svona. Jújú, kannski að með einstaka liðum náum við einhverjum verðlaunum. En við erum bara allt of fámenn þjóð til að geta haldið uppi frábærulandsliði í áraraðir. En mér er svosem sama, ég fylgist meira með íslensku sultunum í fótbolta, heldur en þessum í handboltanum.
[
posted
@
18:47
] [
]
sunnudagur, janúar 23, 2005
Fór í afmæli til Bassa og Ella í gær. Fín stemning þar á bæ. Byrjuðum heima hjá Bassa í bjór og hamborgurum og skelltum okkur svo niður í bæ, nánar tiltekið á prikið, þar sem veislan sjálf átti að fara fram. Það varð samt eitthvað mixup með staðinn, tvíbókun eða eitthvað álíka, svo að áfengisverð var lækkað eitthvað í sárabótarskyni. Annars dugði nú fríi bjórinn lengi, þó að menn tækju hraustlega á því í þeim efnum. Þetta var samt svolítið skrítið kvöld. Venjulegast þegar ég hef verið á Prikinu, þá hefur dansgólfið venjulegast verið fullt, og alltaf frekar mikið fjör. Í gær var samt enginn þar allt kvöldið, nema að við fórum þangað einstaka sinnum ef að gott lag var á fóninum. Ég kenni DJ-inum um þetta allt saman. DJ-inn var náttúrulega gítarleikarinn og glasabarnið Palli mausari. Já, svo gerðist annað mjög undarlegt. Ég, án þess að gera neitt að ég held, missti allar myndirnar út af myndavélinni minni. Þar voru myndir frá þorláksmessu, eitthvað frá jólunum, og svo frá þessu kvöldi, eða um 70 stykki alls. Það var mjög leiðinlegt, því það hefur staðið til svo lengi að setja þær inn á tölvuna. Í staðin voru þá einungis teknar um 17 myndir eftir að þetta gerðist svo ég verð víst að setja þær hér inn við tækifæri, og biðjast afsökunar á myndavélaklúðrinu. En kvöldið var nú alls ekki búið hjá mér. Um 3 leytið fer ég með Elísabetu, Gunna og Hlyni á Pizza King, sem er víst útibú frá devitos. Þar fékk ég mér 2 feitar og kók. Svo bættist Addi í hópinn, og við tókum leigubíl heim. Þegar ég kom heim, fattaði ég að það voru engir húslyklar í vasanum hjá mér. Ég hélt að sjálfsögðu að ég hefði gleymt þeim í leigubílnum, og hringdi í Adda og Betu sem voru enn í leigubílnum, bað hann að tékka á þessu fyrir mig. En auðvitað voru lyklarnir ekki þar. Hmmm..... Þá ákvað ég að brjótast inn til mín, í stað þess að vekja foreldra mína. Fyrir þá sem vita hvernig húsið mitt lítur út, þá byrjaði ég á því að pikka upp gluggann á þvottahúsinu niðri hjá mér, og reyna komast þaðan inn í íbúð. Ég skreið í gegnum gluggann í algjöru myrkri og reyna með öllu móti að hafa ekki hátt, og ekki detta á hausinn. Eftir smá tíma var ég kominn inn, og ætlaði bara að drífa mig að sofa. Neinei.... þá kemur það í ljós að foreldrar mínir höfðu læst þvottahúshurðinni utanfrá, svo að ég komst ekki inn. Ég þurfti þá skríða aftur út um gluggann til að reyna hugsa upp eitthvað annað ráð. En þegar ég var loksins kominn aftur út, þá var ég orðinn það þreyttur að ég hringdi bara í þau og lét þau opna fyrir mér. Ég skil í rauninni afhverju ég gerði það ekki bara í upphafi, eða þá að minnsta kosti á meðan ég var inni í þvottahúsi. En já, svona er dómgreindin góð hjá manni. Svo þegar ég vaknaði í morgun var bara hlegið að manni, og bölvað svo nágrönnunum fyrir að hafa ekki orðið varir við neitt. Að hugsa sér hvað það er auðvelt að brjótast hér inn. Já, maður er aldrei öruggur.....
[
posted
@
20:12
] [
]
föstudagur, janúar 21, 2005
Fór bara í klippingu í dag og losaði mig við sátuna. Ég get svarið að mér varð bara kalt á hausnum um leið og ég kom út af rakarastofunni. Manni líður einhvernveginn samt miklu betur við að hafa minna hár á hausnum. Hitt var svolítið að kæfa mig. Fór reyndar líka í Kringluna í dag til að kaupa afmælisgjöf handa Bassa og Ella, með Guðríði. Það er svo sem ekki frásögu færandi, nema að þegar við vorum að labba út, þá urðum við vitni að því að það var eldri kona sem bakkaði á fullri ferð inn í hliðina á kyrrstæðum bíl í bílastæðahúsinu. (Úff, fegin að þetta var ekki bíllinn minn). Þetta var enginn smá hávaði. Konan ætlaði öruggleg að reyna að stinga af, en sá okkur svo. Þá drullaðist hún nú út til að skoða. Og var eitthvað væflast þarna þangað til að við fórum. Svo sáum við hana bara í baksýnisspeglinum mínútu seinna. Alveg er ég viss um að hún hefur ekki skilið eftir miða. Þess vegna ákvað ég að leggja bílnúmerið hjá henni á minnið. Fólk sem stingur þannig af á náttúrulega að rotna í helvíti! Þess vegna skuluð þið vara ykkur á grárri Opel Corsu með númerið PO 183. Þið gætuð verið næst....
Svo er ekkert planað nema að kíkja á tónleika á Grand Rokk í kvöld. Þar eru Nortón og Jan Mayen að spila. Atli reddaði mér inn á gestalista, svo maður verður þá auðvitað að láta sjá sig. Ég held að þetta eigi eftir að vera feitir tónleikar!....
[
posted
@
17:26
] [
]
mánudagur, janúar 17, 2005
Jájájájá..... alltaf er nóg að gera hjá manni. Ég var afkastamikill um helgina og skellt mér í bæinn bæði föstudag og laugardag. Það var vísindaferð í Lyf og heilsu í Kringlunni á föstudagskvöld, og afmæli hjá Kára og Fúsa á laugardaginn. Seinustu dagar hafa vegna þessa verið mjög slappir hjá mér. En það er ekki bara útaf þessu bæjarrápi, heldur lenti ég í því að startarinn á grænu þrumunni fór. Hann er því í viðgerð þessa stundina, en kemur vonandi á moergun eða hinn. Ég vona allavegana að það verði sem fyrst því annars þarf ég að treysta á aðra að koma mér á milli staða (eins og td. einkabílstjórann á stóra gula volvonum). Annars er það að frétta að önnur skólavika er gengin í garð með öllum sínum skemmtilegheitum. Júbbídú..... Fer reyndar ekki í skólann á morgun sökum frábærrar stundartöflu, en þarf þess í stað að vera lengur á miðviku og fimmtudögum. Ég kvarta svosum ekki....
Fagna því líka að rokkið hafi haldið lífi í íslenskri útvarpsmenningu, þökk sé Freysanum og Mattanum á X-inu (fyrrverandi) , eða ætti maður ekki að kalla það núna X-fm eins og það heitir. Já það er sko ekki auðvelt að drepa rokkið...
[
posted
@
23:26
] [
]
fimmtudagur, janúar 13, 2005
Alveg frábært! Einmitt þegar ég hélt að dagurinn gæti ekki verið verri. Ég mæti í skólann í hrútleðiðinlega tíma, og er þess feginn að geta farið heim kveikt á útvarpinu, og haft það rólegt. Tékka aðeins á Freysanum, sjáiði til. En neinei, Íslenska útvarpsfélagið tók þá afdrifaríku ákvörðun að kippa X-inu og Skonrokk endanlega úr sambandi. Í staðin stendur til að efla FM957 (veit ekki hvað þeir meina með því)! Mér skildist að þetta hefði allt verið gert án þess að starfsfólk og umsjónarmenn stöðva vissu af. Það var allaveganna ekkert minnst á þetta í þætti freysa í gær, og hlustaði ég á hann allann í vinnunni í gær. Hann kynnt meira að segja dagskrá morgundagsins (dagsins í dag) fyrir hlustendum. Þetta finnst mér algjörlega óásættanlegt! Ég hef verið hlustandi X-ins frá upphafi, og man eftir því þegar það var stofnað, þó ég hafi verið ungur þá. Þetta er því svolítið sjokk fyrir mig. Svo er víst Radio Reykjavík líka dottin úr loftinu, svo að það er sviðinn akur í rokk-útvarpinu á Íslandi. EF AÐ ÞETTA Á EKKI EFTIR AÐ AUKA "LAGASTULD" AF NETINU, ÞÁ VEIT ÉG EKKI HVAÐ!!!! En ókey, þeir gefa ástæður þessa að stöðvarnar hafi skilað tapi. Væri þá ekki nær, til að auðga útvarpsflóru Íslands að setja allar stöðvarnar ásamt Bylgjunni, undir sameiginlega fjárhagsumsjón, og reka þær þannig. Þetta jafnar út kostnað/tap, og væri í raun sniðugra. En neinei, enn og aftur. Íslenska útvarpsfélagið hefur þess í stað sett í loftið á tíðni Skonrokks (90,9) nýja talmálsstöð, með honum þroskahefta Illuga Jökulssyni. Þetta á víst að fara í samkeppni við Rás 2. Er ekki nóg að Bylgjan (líka draslstöð) sé í þeirri samkeppni. Væri ekki nær að hafa eina af þessum stðöðvum sem lokað var í loftinu, og nota þann kostnað sem fer í þessa nýju stöð til að bæta fjárhag þessara sv0kölluðu tapstöðva? Ég bara varpa þessu svona fram.....
Ég hvet alla eindregið með að skella sér inn á b2.is og skrifa undir undirskriftarlista sem er einn af linkunum þar og mótmæla þessari ákvörðun!!!
[
posted
@
17:30
] [
]
þriðjudagur, janúar 11, 2005
Jæja þá er maður kominn úr jólabloggfríi og byrjaður aftur í skólanum. Var að komast að því að ég er ekki í skólanum á þriðjudögum. Alls ekki leiðinlegt. Er reyndar lengi á daginn, en það er allt í lagi fyrst ég þarf ekki að mæta á laugardögum. Þetta verður held ég bara góð önn. Er núna ennþá að bíða eftir seinustu einkunninni minni. Vona bara að það sé náð. Er allaveganna búinn að ná öllu öðru.
Var svo að sjá að Bigginn er byrjaður að blogga á fullu á Spáni. Gott að heyra að hann er að spjara sig.
[
posted
@
22:17
] [
]
|