|
sunnudagur, nóvember 28, 2004
Þá er helgin senn að vera búin og alltaf styttist í prófin. Ekki skemmtileg tilhugsun það. Það verður samt fínt að fara út að borða með strákunum á þorláksmessu, því maður hefur varla séð þá nema í mýflugumynd. Var líka að sjá það hjá strákunum út í Danmörku að tölvunni hans Jóa var stolið. Hann segir samt svolítið skemmtilega frá því á síðunni sinni, þó þetta sé ekkert til þess að hlæja að.
Á morgun er seinasti mánudagurinn minn í skólanum fyrir áramót. Ágætt það, bara 4 daga helgi næst. Hún fer samt örugglega öll undir það að læra....
Var að lesa frakar fyndinn bækling sem kom með sunnudagsblaði Moggans. Það var frá Smit og Norland. Í því var tveggja metra hár ísskápur með 15" LCD sjónvarpi. Að sjálfsögðu fylgdi fjarstýring með, svi hinn almenni notandi (markhópur spikfeitar fjölskykdur, held ég) þurfi nú örugglega ekki að standa upp, nema hann nauðsynlega vanti eitthvað í ísskápinn. Ég meina það...... ER EITTHVAÐ AÐ!!!!! Ætlum við Íslendingar virkilega að láta hafa okkur svona mikið að fífli. Mér finnst þetta mjög absúrt að það sé til fólk sem kaupir sér svona hluti. Ég var til dæmis að kaupa mér ísskáp um daginn á 14 þúsund kall og dugar hann mér bara ágætlega, og hann er EKKI með sjónvarpi!
Það var líka annað í þessum blessaða bæklingi sem ég veitti athygli..... Sá mekkanismi bar heitið IRONMAN. Þetta var skyrtustrauanarvél. Hvað er ekki til spyr ég nú bara?!? Og hann kostaði líka eitthvað yfir hundraðþúsund kall. Og svo var þetta allt saman náttúrulega titlað sem jólagjafa hugmyndir... Ég meina kommon......
Já, kannski að ég, fátæki námsmaðurinn, splæsi bara nýjum ísskáp með sjónvarpi á mömmu, og skyrtustrauvélinni á pabba því að þetta eru bara svo frábærar hugmyndir! Það er örugglega fulllt af fólki á landinu sem hugsar alveg eins og ég......
[
posted
@
19:56
] [
]
fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Jæja, þá eru endurbæturnar búnar í bili. Þetta tók styttri tíma en ég hélt og er ég bara nokkuð ánægður með útkomuna. Annars er maður bara búinn að vera að læra í dag, því það styttist alltaf í prófin. Það frábæra er samt það að ég þarf ekki lengur að mæta í skólann á föstudögum, og ekki heldur á mánudögum. Fögin sem voru kennd þessa daga eru bara búin. Alls ekki slæmt. Bara 4 daga helgi. Það leiðinlega við er samt það að þetta er 4 daga lestrarhelgi. Maður sér jólafríið bara í hillingum fyrir sér.
[
posted
@
22:40
] [
]
Er að vinna í síðunni, svo, hún verður eitthvað funky næstu daganna.... Hvernig finnst ykkur samt það sem er þegar komið?
[
posted
@
18:39
] [
]
mánudagur, nóvember 22, 2004
Djöfull er ég búinn að vera latur. Það hefur ekki komið nein færsla í rúma viku. Fólk gæti haldið að ég væri bara dauður! Nei, það er bara búið standa þannig á að ég hef bara ekki haft neitt merkilegt að segja. Það er bara sama rútínan alla daga núna, vakna.... fara í skólann... koma heim.... læra. Ég lærði meira að segja alla helgina (hehhemm!!!!) Ég lýg því nú svolítið. Var nefnilega að fá allar stöðvarnar á breiðbandinu. Þetta eru einhver 50 stykki, svo ég er búinn að vera frekar busy yfir því. Það er ótrúlegt hvað maður getur horft á sjónvarpið. Mér var farið að líða eins og feitum kana, í blettóttum wifebeeter með budwieser í annarri! Maður alveg festist yfir þessu. Já, það er eiginlega ástæðan, afhverju ég hef hreinlega ekki nennt í tölvuna. Maður þarf nefnilega að passa sig á þessu, að verða ekki alveg hooked svona rétt fyrir prófin. Sé samt fyrir mér ljúft jólafrí fyrir framann skjáinn.
Er að fara í æfingarpróf í efnafræði á morgun. Sem betur fer gildir það ekkert, gefur manni einungis hugmynd um hvar maður stendur. Ágætt svosem, ætla samt frekar að einbeita mér að stærðfræðinni í dag, er tæpari í henni.
Kannski spurning að fara að læra, ekki veitir af....
[
posted
@
16:02
] [
]
fimmtudagur, nóvember 11, 2004
Þá eru mamma og pabbi bara búin að skella sér til London, og skilja mig eftir aleinan heima. Ég meina, hver á að elda handa mér mat, og þvo af mér þvott. Þau geta ekki gert mér þetta! Þetta sleppur kannski þessa vikuna, því það er Megavika hjá Dominos frænda. Ætli það verði ekki ein Extra í kvöld, og hver veit... jafnvel á morgun líka. Samt óvíst með morgundaginn, því er vísindaferð í Pharmanor. Maður lætur sig sko ekki vanta þegar eitthvað svoleiðis er á dagskrá. Ég hvet þess vegna alla til að fara niðrí bæ annað kvöld, því það verður feitt!!!
[
posted
@
17:02
] [
]
þriðjudagur, nóvember 09, 2004
Það er ótrúlegt hvað maður getur dottið stundum niður í svona kæruleysis stemningu. Það er að segja, svona skap, þar sem geislar af manni: "Ég nenni ekki neinu". Það er samt farið að síga í annan endann á þessari önn í skólanum, og jafnvel er það kannski ástæðan fyrir þessu öllu saman. Manni kvíður alveg djöfulli mikið fyrir prófunum, og vill helst ekkert hugsa um þau, hvað þá fara í þau. En þetta er eitthvað sem verður að gerast, ef maður ætlar sér eitthvað áfram í þessu námi. Maður veltir því samt alveg fyrir sér hvort maður hefði ekki bara átt að taka sér frí í ár, já eða hafa bara verið áfram í Menntaskóla. Æ, ég veit ekki. Kannski er þetta bara skammdegisþunglyndið og skólaleiðinn sem talar....
Ætla samt að skella mér í vísindaferð í Pharmanor á föstudaginn. Rétt náði að skrá mig í hana í dag; það skráðist upp á innan við 5 mín. Það verður kannski til að hressa mig við í þessu öllu saman. Svo kannski líka það að ég klára vonandi verklega áfangan í efnafræði á föstudaginn líka svo þá verður maður ef til vill léttari í lund. Þá er einnig komið frí á föstudögum. Já, þetta er allt að styttast þótt mér líki betur eða verr.....
Hitti líka gamlan félaga niðrí Háskóla í dag. Hann heitir Óli Páll, og er að læra lögfræði. Það var ágætt að hitta hann svona, maður sér hann nefnilega nánast aldrei. Vona bara að honum gangi vel í þessari prófasíu sem hann er að fara að lenda í um jólin.
En núna verður maður víst að fara að læra, annars hef ég ekkert að gera í skólann í fyrramálið. Get samt sofið út til ellefu.... sweet....
[
posted
@
17:30
] [
]
sunnudagur, nóvember 07, 2004
Já, strákarnir Gunni og Andri héldu upp á tvítugsafmælið sitt í gær, við mikinn fögnuð viðstaddra. Hjá mér byrjaði veislan snemma, eða klukkan 6 heima hjá Andra. Þar grilluðu hann og Gunni handa okkur strákunum og gáfu okkur bjór. Þegar við vorum allir orðnir frekar saddir, vorum við ferjaðir á nokkrum bílum niðureftir á Glaumbar þar sem áframhaldindi veisla átti að vera. Þar fengum við meiri bjór, og jellyvodka-staup sem Gunni hafði búið til. Jellystaupin voru þannig, að Gunni útbjó venjulegt blaup (svona Toro eða eitthvað í þá áttina), en í staðin fyrir vatn setti kallinn vodka. Svo kom hann þessu fyrir í litlum staupglösum. Frekar smekklegt hjá honum. :) Fólk varð samt alveg kolbilað af þessu! Afmælisbastarðanir héldu svo mynda slideshow (held ég útbúið af Þurí systur Gunna). Þar voru náttúrulega myndir af okkur strákunum líka, frá því að við vorum litlir. Við vorum svona mis hallærislegir, ég allaveganna með þeim allra verstu, með andlitið falið á bak við undirskála gleraugu. Já, hvað voru foreldrar mínir að hugsa þegar þau völdu þessi gleraugu handa mér, ég bara spyr. En ég ætla ekkert að velta mér upp ú því núna, lögsæki þau bara seinna með hjálp Gumma! :) Gleðin var allavegann við stjórnvölin hjá öllum í gær, og segja þessar myndir sem ég tók í gær meira en mörg orð. Til hamingju með afmælið strákar!
[
posted
@
20:56
] [
]
Var í afmæli í gærkvöldi hjá Andra og Gunna. Það var frekar feitt. Hef samt ekki tíma til að skrifa mikið um það núna, og ætla því að bæta úr því í kvöld eða á morgun. Camerus Digitalus var líka með í för, og var smellt af um 70 sinnum, að ég held. Þær fylgja einnig með frásögninni. En akkúrat núna þarf ég að fara að læra.
[
posted
@
14:16
] [
]
miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Eru ameríkanar fæðingarhálvitar!?!
[
posted
@
23:14
] [
]
|