JP

 
   laugardagur, október 30, 2004  

Það var tekið á því í vísindaferðinni í gær. Maður var kominn niðrá Hressó klukkan hálf fjögur, þar sem ég hitti fyrir nokkra aðra úr Lyfjafræðideildinni. Eftir einn bjór eða svo var svo tekinn strætó frá Lækjartorgi alla leið upp á Krókháls, þar sem Lyfjadreifing er til staða. Vísindaferðin var heldur fáleg, og komust við því fljótt í veigarnar og matinn. Þetta var hin fínasta ferð, fyrir utan það að veislusalurinn var u.þ.b. 40 fermetrar fyrir yfir 50 manns. Sem sagt heldur troðið. Því næst lá leiðin niður á Gauk á Stöng. Þar kostar nefnilega bjórinn fyrir okkur 290 kall. Alveg gjafaverð. Svo vildu einhverjir fara að horfa á idol á Glaumbar, svo ég fylgdi bara straumnum, enda ekki langt að fara. Það er samt hálfgerður kúkastaður, en einhverri stelpunni fannst það sama og mér, en tók það bara skrefinu lengra og kúkaði á gólfið á stelpuklósettinu. Við vorum ekki, það mörg þarna inni, þannig það er spurning hver þetta er? En dyravörðurinn var öllu vanur, og þegar hann var að skófla þessum lorti upp, sagði hann bara frekar yfirvegaður: "Shit happens..." og glotti svo. Mér fannst þetta nú alveg einum of, og skellti mér aftur á Hressó. Það vildi nefnilega svo skemmtilega til að 2 gaurar sem ég kannast við voru að trúbadorast þar. Góð stemning hjá þeim! Þar kúkaði allaveganna enginn á gólfið!!! Sat þar svo frameftir kvöldinu, þangað til að ég kom mér bara heim. Er svo að fara til Ásgeirs í kvöld, þar sem hann býður til spilakvölds. Þar á maður eftir að hitta fólk sem maður hefur ekki séð lengi. Í kvöld verður sem sagt bara tekið rólega á því... Setti samt inn myndir frá gærkvöldinu hérna.

   [ posted  @ 18:02 ] [ ]



   föstudagur, október 29, 2004  

Á eftir fer ég í vísindaferð í Lyfjadreifingu, eða um 5 leytið. Svo er stefnan tekin niður í bæ, þar sem eitthvað massívt gerist.
Var samt í skíta-verklegumtíma í morgun og er frekar pirraður og þreyttur. Það ótrúlegt hvað maður getur byggt upp mikla andúð á fólki sem maður þekkir ekki einu sinni. Maður er hálfgerður bastarður. En svona er þetta nú samt. Það eru bara þarna nokkrir í þessum tíma, sem manni langar til að skvetta saltsýru á, þótt þetta fólk hafi kannski ekki gert manni neitt. Kannski læt ég samt bara svona því að ég er svangur og þreyttur. Kannast enginn við þetta?

   [ posted  @ 13:45 ] [ ]



   miðvikudagur, október 27, 2004  

Loksins er farið aðeins að hægjast um hjá manni. Bara strax búinn með 2 áfanga, og stundartaflan alltaf að styttast. Það er ekki verra því núna er einmitt nóg að gerast í félagslífinu. Það er vísindaferð í Lyfjadreyfingu á föstudaginn. Já, það var sko helvítis barningur að koma sér inn á þann lista. Það tók um það bil 4 mín að verða fullskráð. Eins gott að vera bara nógu snöggur á refresh takkanum. Eftir vísó liggur leiðin að öllu líkindum fyrst á Gaukinn, og svo eitthvað annað. Ástæðan er sú að þar er hægt að fá bjórinn á 50% verði, fyrst maður er í lyfjafræði. Annars var ég að átta mig á því einmitt núna að Gunni "litli" á afmæli á sunnudaginn. Til hamingju með það ef ég hitti þig ekkert Gunni! Frétti líka af því að það hefði verið hörkuleikur í gangi í handboltanum í dag. Gummi var víst að keppa með Bifröst ásamt Braga frænda á móti Haukum. Það fór held ég 44-27. Samt ágætt, býst ég við...

   [ posted  @ 21:16 ] [ ]



   sunnudagur, október 24, 2004  

Fór í grill til Óla í gærkvöldi. Það var ágætt að geta hitt strákana núna, því maður hefur varla séð þá, síðan bara í afmælinu hans Hlyns. Við mættum þarna upp úr 6 og kveiktum upp í grillinu. Ég og Bassi ákváðum að vera ekkert að snobba neitt og fengum okkur bara old fashioned hamborgara. Hinir voru aftur á móti með þvílíkar aðfarir með eldamennskuna, að það sést áður. Kokkurinn (Gunni) sá um að matreiða þetta allt saman, en kvenmaðurinn Óli um uppvaskið. Tók einmittt með mér myndavélina, og smellti af nokkrum. Læt þær fylgja hér með. En maður verður núna að fara að halda áfram að læra, þó það sé dauði og djöfull....

   [ posted  @ 13:30 ] [ ]



   þriðjudagur, október 19, 2004  

Þetta partý um seinustu helgi var frekar fínt. Það kom fljótt í ljós að partýhaldarinn er sonur Gunna Þórðar (gítarleikarans úr Hljómum). Hann leyfði okkur að kíkja upp í stúdíó til pabba síns þar sem við gátum aðeins tekið í gítarana hans. Það var frekar næs. Er núna að fara að vinna í hópverkefni fyrir lyfjafræðina. Það þarf að mixa saman smá fyrirlestur fyrir morgundaginn. Þetta er í rauninni lokaverkefnið í þessum áfanga. Hann klárast nefnilega á fimmtudaginn. Já, en svo ég komi mér aftur að partýinu. Þetta var geðveik íbúð. Minnti svolítið á piparsveinaíbúð á Manhattan. Það kom alveg fullt af fólki, meira að segja fólk af 2. ári (það mætir nefnilega aldrei á neitt). ÞArna kynntist maður helling af fólki sem maður eiginlega aldrei þoraða að spjalla við áður. Mjög gaman. Fórum svo niður í bæ um 2-leytið, þar sem farið var stutt stopp inn á Ara, litið inn á Prikið, Kaffi List, Kofa Tómasar Fæanda og Aftur í áttina að prikinu. Maður komst reyndar ekki aftur inn vegna þess að það voru komnar svo langar raðir allsstaðar. Þá var maður líka orðinn svolítið þreyttur (búinn að vaka í uþb 20 tíma) að maður drullaðist bara heim í leigubíl. Jæja fólkið komið, verð að fara að vinna...

   [ posted  @ 19:39 ] [ ]



   laugardagur, október 16, 2004  

Afsakið, hvað ég hef verið lélegur að skrifa. Er nefnilega búinn að vera að læra undir próf síðustu daga. Þetta var stærðfræði, sem átti sér stað í morgun. Það gekk bara vonum framar, og ég býst við að þetta verði hæsta einkunn sem ég hef fengið síðan.... tjahh... örugglega úr samræmduprófunum(sem sagt hærra en 6). Þetta var sem sagt gleði dagur. Skellti mér svo í líkamsrækt, eitthvað sem ég hef ekki gert síðasta 1 og hálfa árið. Maður var orðinn eins og gamall reykingamaður, móður á því að labba upp stiga. Ákvað því að gera eitthvað í þessu.
Er núna að fara að skella mér í lyfjafræðipartý hjá "Hemma Gunn". Hemmi Gunn (rétt nafn Karl Brooke Hermann Gunnarsson) er gaur sem er með mér á fyrsta ári. Hann var svo góður að leyfa okkur, samnemendum sínum að samgleðjast honum í íbúð hans niðri í bæ eftir hafa lokið fyrsta prófinu. Ætla að koma við á hamborgarabúllu Tomma áður en ég mæti á svæðið. Þarf að fara að koma mér...

   [ posted  @ 19:44 ] [ ]



   miðvikudagur, október 13, 2004  

Djöfulli getur íslenska landsliðið í fótbolta ekki neitt!!! Amma mín hefði gert meira gagn inni á vellinum í stað sumra....

   [ posted  @ 21:20 ] [ ]



   sunnudagur, október 10, 2004  

Þetta er búin að vera annasöm helgi. Föstudagurinn var ætlaður til afslöppunar fyrir skálaferðina í Lyfjafræði sem áætluð var á laugardaginn. Ég var gjörsamlega kominn í sjónvarps/video/dvd gírinn þegar síminn hringir hjá Guðríði. Á línunni er Orri. Hann spyr hvort að við höfum áhuga á að koma með honum á frumsýningu í Borgarleikhúsinu, sem átti að hefjast c.a. hálftíma seinna. Við játum, drífum okkur í betri gallann og hendumst niður í Borgarleikhús. Þar var samansafn af samkvæmisklæddu fólki sem beið eftir því að opnað væri inn í salinn. Leikritið sem við vorum að fara að sjá hét Héri Hérason. Það er svona súrrealískt stykki sem einblínir á almúgamanninn (jafnvel of súrt á köflum). Þetta var samt hin besta skemmtun. Tók svo eftir því, í lok sýningar að fyrrverandi vinnufélagi minn, Jón Sæmundur Auðarson (Sæmi slæmi eins og hann vildi kalla sig) var búningahönnuður. Hann fær hrós fyrir fína búninga.

Laugardagurinn byrjaði leiðinlega eins og venjulega. Það er nefnilega dæmatími hjá í efnafræði klukkan 10-11 á morgnana. Mætti í hann og fannst hann frekar leiðinlegur og óþarfur. Það var þó samt eitt áhugavert aukadæmi sem dr. Oddur ákvað að hressa lýðinn með. Ég hef ákveðið að láta það fylgja hér með:

Hversu mörg mól af etanóli eru í 0,5L af bjór?
Áfengismagn bjórs er að meðaltali um 5% -----> Það gefur okkur að það eru um 25 g af etanóli (CH3CH2OH) í í bjórnum. Mólmassi etanóls er 46g/mól.
Við segjum því 25g/46g/mól go fáum 0,543 mól. Margföldum það með 6,o2*1023 og fáum þá að við innbyrðum að jafnaði um 3,27*1023 sameindir af etanóli í hverjum bjór sem við drekkum.

Já en nóg um það. Við lögðum af stað út úr bænum um fimmleytið og vorum komin rétt fyrir 6. Þetta var ágætisstaður, og frekar gott fólk. Það var geðveik stemning þarna alla nóttina, og kynntist maður fullt af nýju fólki. Ætla samt sem minnst að tjá um ferðina þessa stundina, heldur geri ég það frekar þegar myndirnar koma. Það verður einhverntíman í vikunni....

   [ posted  @ 20:23 ] [ ]



   fimmtudagur, október 07, 2004  

Gaf síðunni smá andlitslyftingu. Vona að ykkur lítist vel á! :)

   [ posted  @ 20:28 ] [ ]


 

Mætti ekki í skólann í dag. Ætlaði að reyna að ná þessum kvefdjöfli úr mér. Vaknaði í staðinn á sama tíma og skólinn byrjaði og hófst handa við að læra. En það er nú einu sinni þannig að þegar maður er veikur þá er maður ekki eins afkastamikill. Gerði samt svosem alveg nóg.
Er samt hræddur um að þessi skálaferð með lyfjafræðinni eigi eftir að floppa svolítið. Það eru nefnilega bara 12 búnir að skrá sig, 8 manns á fyrsta ári, 2 á þriðja ári og 2 á fjórða ári. Vona bara að fólk taki við sér núna í dag og á morgun. Það er ekki sienna vænna. Núna á dagskránni í dag er bara að læra sér í haginn fyrir helgina. Þetta er ekki lengur neitt Dvalarheimili við Sund...

   [ posted  @ 16:41 ] [ ]



   miðvikudagur, október 06, 2004  

Var að sjá að Sigpons er líka með blogg úti í Danaveldi. Ákvað því að skella honum inn hér til hliðar í linkana. Er annars ennþá svona drulluslappur. Maður þarf nú heldur betur að gera eitthvað til að ná þessu úr sér fyrir helgina. Fór því og keypti mér otrivin, sem að mínu mati er algjört eitur. Það ætti losa allt sem er fast í hausnum á mér. Maður þarf að byrja snemma að kynna sér öll lyf sem eru á markaðnum, fyrst maður er í lyfjafræði á annað borð... :)

   [ posted  @ 21:44 ] [ ]



   þriðjudagur, október 05, 2004  

Djöfull sökkar það að vera veikur. Gat varla farið í skólann vegna yfirfylltra ennihola og hóstaköstum. Það er veikinda árstíðin að byrja núna. Mér skildist það eftir áreiðanlegum heimildum að allir í Sal 1 í háskólabíói hafi verið með trefla í dag. Er þetta spænska veikin frá Costa Del Sol að sækja á okku aftur, ég bara spyr! Svo er stefnt að því að fara í skálaferð með lyfjafræðinni um helgina. Maður þarf víst bara að bryðja nóg af C-vítamíni og éta sólhatt í hvert mál ef maður ætlar að komast. Nei, þetta er ekki skemmtilegt...

   [ posted  @ 14:53 ] [ ]



   sunnudagur, október 03, 2004  

Fór á ostasýninguna í smáralind áðan með Guðríði. Hvað er málið! Ostur er bara ostur. Það þarf enga sýningu til að reyna eitthvað að upphefja hann meira. Svo kom mér það mjög á óvart að Andri og Kolla voru að vinna þar á einum básnum. Andri, þú tekur þig helvíti vel út með gúmmíhanskana og svuntuna framan á þér! :) Keypti mér líka nýja diskinn með The Killers- Hot Fuss. Er ekki ennþá búinn að hlusta á hann allan en hann lofar góðu...

   [ posted  @ 18:52 ] [ ]



   laugardagur, október 02, 2004  

Þetta októberfest í gær var magnaður skítur. Fullt af fólki, góð stemning og góður bjór. Gat samt því miður ekki stoppað mjö lengi því ég átti að mæta í skólann í morgun. Það samt sem betur fer bara fram að áramótum (vonandi).

Ákvað samt að fara að skella myndum aftur inn á síðuna. Þetta picturetrail drasl var hætt að virka svo ég flutti mig annað...
Hér má sjá myndir úr afmælinu hans Hlyns (Peter Griffin) sem var í lok ágúst.

   [ posted  @ 17:33 ] [ ]



   föstudagur, október 01, 2004  

Er að fara á oktoberfest niðri í háskóla á eftir. Þar verður boðið upp á mini-maskrug, bretzel und brawurst. Það vantar ekki flottheitin. Vildi bara að ég hefði haft vit á því að safna mottu fyrir þetta allt saman...

   [ posted  @ 18:24 ] [ ]


[=MySpace=]

 

[=Bloggarar=]
Addi
Arngrímur
Atli
Ásgeir
Bassi
Biggi
Birta
Olíufurstinn
Brynja P
Drífa
Eva
Ernir
Finnur
Gísli
Gummi
Gunni (The Mott)
Hjörtur
Kári
Kristín Ella
Laugarneshyskið
Linda
Lyfjafræðiskvísur
Magga
Olla
Ommi
Orri og Bryndís
Óskar
Ragnar Ingi
Sandra
Sigpons
Smári
Sólveig
Stelpurnar
Tóti
Unnur Birna (UB)
Þorkell
[=
Gamalt=]
10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 01/01/2007 - 02/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007


[=Creditlisti=]