|
föstudagur, janúar 02, 2004
Þá er árið 2003 liðið og nýtt ár gengið í garð. Árið verður alveg frábært í þeim skilningi að maður útskrifast og verður tvítugur. Og dagsetningin á tvítugsafmælinu mínu er ekki af verri endanum! Hún 04.04.04. Svolítið flott tala!:) Svo eru allir fermingarkrakkarnir vitlausir í að ferma þennan dag. Flottur dagur, það verður ekki meira sagt!
Það er alveg ótrúlegt hvað gamlárskvöld er ofmetið djammkvöld! Í ár var það reyndar nokkuð gott, en árin tvö á undan hafa verið svolítið mis. Kem samt betur að því seinna. Núna ætla ég að koma mér af stað í þessu blessaða kjörsviðsverkefni mínu. Það er ekki seinna vænna því það á að vera fullklárað þann 15. mars næstkomandi. Betra að vera tímanlega með þetta núna svo maður hafi ekki allt niðrum sig!
[
posted
@
18:13
] [
]
|